Innlent

Formannsslagur hjá ungum sjálfstæðismönnum

Aðalfundur Heimdallar verður haldinn í Valhöll
Aðalfundur Heimdallar verður haldinn í Valhöll

Jónas Margeir Ingólfsson, 22 ára laganemi, hefur tilkynnt framboð sitt til formanns Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna. Áður hefur Hlynur Jónsson, laganemi og fyrrverandi formaður Ungra frjálshyggjumanna, tilkynnt um framboð sitt. Sitjandi formaður, Árni Helgason, gefur ekki kost á sér til endurkjörs.

Aðalfundur Heimdallar fer fram miðvikudaginn 15. september og mun þá ný stjórn taka við félaginu.

Jónas starfaði í sumar sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Hann var forseti nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð veturinn 2006-7 og jafnframt talsmaður hagmunaráðs íslenskra framhaldsskólanema. Jónas Margeir hefur verið virkur í starfi ungra sjálfstæðismanna og sat m.a. í varastjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna árin 2005-2007.

Hann býður sig fram ásamt ellefu öðrum sem saman stefna á að mynda stjórn Heimdallar. Í tilkynningu sem hópurinn sendi frá sér segir:

„Við gefum kost á okkur til þess að leiða starf félagsins á næsta ári og viljum leggja á það höfuðáherslu í okkar starfi að virkja ungt fólk til þátttöku í stjórnmálum. Mikill pólitískur áhugi er á meðal ungs fólks í dag og miklu skiptir að Heimdallur sé opinn og aðgengilegur vettvangur fyrir þennan stóra hóp til að kynnast og móta stefnu og starf Sjálfstæðisflokksins.

Við teljum að Heimdallur eigi að vera gagnrýninn, bæði inn á við gagnvart kjörnum fulltrúum flokksins sem og út á við gagnvart þeim málum sem efst eru á baugi hverju sinni, að félagið eigi að berjast fyrir hugsjónum um frelsi, frjálslyndi og svigrúm einstaklingsins til að blómstra á eigin forsendum ásamt því að tala máli ungs fólks þegar á þarf að halda"

Meðframbjóðendur Jónasar eru:

Albert Guðmundsson, nemandi í MR. Albert er í ræðuliði Menntaskólans í Reykjavík og gegnir embætti Le Pré Róðrafélagsins.

Atli Hjaltested, útskrifaður úr MS. Atli var virkur í félagsstörfum í Menntaskólanum við Sund, var m.a. í sigurliði skólans í Morfís nú í vor og handhafi titilsins ræðumaður Íslands.

Árni Grétar Finnsson, laganemi við HÍ. Árni Grétar útskrifaðist úr Verslunarskólanum í vor og var virkur í félagsstörfum, þ. á m. í ræðuliði skólans.

Erla María J. Tölgyes, nemandi í sálfræði við Háskólann í Reykjavík. Erla útskrifaðist úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í vor og var formaður nemendafélagsins þar síðasta vetur.

Hjalti Geir Erlendsson, laganemi við HÍ. Hjalti var í stjórn Orators, félags laganema, síðasta vetur og starfaði í sumar sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Hjalti Geir er í landsliðinu í fimleikum.

Hlynur Einarsson, stjórnmálafræðingur. Hlynur var varaformaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta í Háskóla Íslands, árið 2008-9. Þá var

Hlynur formaður nemendafélags fjölbrautaskólans í Breiðholti.

Jakob Gunnarsson, nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík. Jakob var í ritstjórn Gjallarhorns, tímarits Heimdallar, sem var endurvakið með útgáfu í vor.

Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Nethönnun. Jóhanna var í stjórn Heimdallar á starfsárinu sem er nú að líða og gegndi m.a. starfi kosningastjóra ungra sjálfstæðismanna í borgarstjórnarkosningunum í vor.

Jóna Vestfjörð Hannesdóttir, nemandi á lokaári í Verslunarskóla Íslands en Jóna er í ritstjórn Viljans, tímarit nemendafélags VÍ.

Yngvi Eysteinsson, útvarpsmaður á FM957 og einn af stofnendum útvarpsstöðvarinnar Flass FM.

Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, laganemi á 4. ári við Háskólann í Reykjavík. Þórdís var í stjórn SUS árin 2007-9 og var formaður ungra sjálfstæðismanna á Akranesi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×