Ólína segir Davíð, Halldór og Valgerði vera hina raunverulegu gerendur 21. september 2010 14:19
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðnar efasemdir um að réttlætinu verði fullnægt með því að draga fyrir dóm þá fjóra ráðherra sem hluti þingmannanefndar Atla Gíslasonar telur að hafi sýnt af sér vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins haustið 2008 og að ábyrgð þeirra fjögurra sé lögð að jöfnu. Að mati Ólínu var þáverandi utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ekki í stöðu til að grípa inn í þróun mála í efnahagslífinu hér á landi enda heyri slíkt undir önnur ráðuneyti. Ólína leggur áherslu á að Geir Haarde, þáverandi forsætisráðherra, hafi setið sem ráðherra í fyrri ríkisstjórn, þeirri sömu og hafði að hennar mati meiri áhrif á þróun mála. Hans ábyrgð hljóti því að vera meiri sem fjármálaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á árunum fyrir bankahrun. „Skyldi hans ábyrgð ekki vera ríkari en þeirra sem stigu inn á sviðið þegar orðið var um seinan að afstýra því sem gerðist?" spyr Ólína. Hinir raunverulegu gerendur í aðdraganda bankahrunsins eru að mati Ólínu stikkfríir þar sem ráðherraábyrð þeirra er fyrnd að lögum. Þar nefnir Ólína til sögunnar Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, Valgerði Sverrisdóttur, fyrrverandi viðskiptaráðherra Framsóknarflokksins, og Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formann Framsóknarflokksins. „Landsdómur nær ekki til þess tíma," segir Ólína og bendir á að sök ráðherra fyrnist á þremur árum samkvæmt gildandi lögum. Ólína segir að með því að þetta fólk sleppi við að axla ábyrgð á gjörðum sínum á meðan aðrir ráðherrar sem komu síðar að stjórn landsins sæti refsingu sé mögulega verið að hengja bakara fyrir smið. Hún telur að það séu Davíð, Halldór, Valgerður og aðrir sem sátu við stjórnvölinn í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar á árunum 2003 til 2007 þegar bankarnir voru einkavæddir sem eigi stærstu sökina. Hún segir að það hafi verið þau sem leyfðu svokallaðan hraðakstur í fjármálakerfinu og gott ef þau hönnuðu ekki hreinlega vegakerfi fyrir hraðaksturinn. Ólína gefur ekki mikið fyrir starf þingmannanefndar Atla Gíslasonar og segist blása á það sem kallað er niðurstaða þingmannanefndar. „Samvisku sinni vísar maður ekki til þingnefndar," segir hún. Ólína bendir á að þingmannanefndin hafi verið þríklofin í afstöðu sinni til þess hvort og þá hverja skuli ákæra. Hanni finnst óviðeigandi að vísa í tilfinningar nefndarmanna þegar rætt er um afstöðu þeirra til ákæranna. „Tilfinningar nefndarmanna eru fullkomið aukaatriði og geta aldrei vegið þyngra en almannahagsmunir," segir Ólína.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Sjá meira