Innlent

Launin verði þau sömu

Ráðhúsið í Reykjavík
Ráðhúsið í Reykjavík Mynd/GVA
Forsætisnefnd Reykjavíkurborgar ákvað 16. september síðastliðinn að kjör fyrstu varaborgarfulltrúa verði færð til fyrra horfs. Kjör þeirra verða því eins og þau hafa verið í fjölda ára, eða 70% af launum borgarfulltrúa eða um 283 þúsund krónur.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að forsætisráðherra hafi samþykkt að fella niður þessi kjör fyrstu varaborgarfulltrúa, en jafnframt að endurskoða launakerfi borgarfulltrúa og gera tillögur að breytingum er taki gildi í upphafi nýs kjörtímabils.

„Vinna við endurskoðun launakerfisins var aldrei sett af stað. Þegar nýr meirihluti tók við lá hvorki fyrir endurskoðun né breyting á starfsskyldum fyrstu varaborgarfulltrúa. Því lögðu fulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar fram tillögu um að færa launin aftur í sama horf. Tillagan var samþykkt á fundi nefndarinnar með stuðningi VG. Með þessu er verið að leiðrétta kjör fyrstu varaborgarfulltrúa og setja þau í meira samhengi við vinnuframlag.

Laun varaborgarfulltrúa verða þau sömu og þau hafa lengi verið.

Rétt er að taka fram að strax í vor ákvað nýr meirihluti að stuðla að hagræðingu með því að leggja niður nokkrar nefndir og ráð. Nefndirnar sem um ræðir eru framtalsnefnd og ráðin eru leikskólaráð og framkvæmda- og eignaráð. Töluverð hagræðing hefur þegar hlotist af þessum aðgerðum," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×