Innlent

Bjarni: Þessari tillögu ber að hafna

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er ósammála í öllum grundvallaratriðum þeirri þingsályktunartillögu sem lögð hefur verið fram af þingmönnum í Atlanefndinni svokölluðu og mælir fyrir því að fyrrverandi ráðherrar verði ákærðir. Bjarni telur að tilögunni beri að hafna.

Í ræðu sinni á þingi talaði Bjarni meðal annars um eftiráspeki, að auðvelt sé að vera vitur eftir á varðandi hvað hefði átt að taka til bragðs í miðju hruni. Enginn gæti hinsvegar haldið því fram með rökum að ráðherrararnir fyrrverandi hafi ekki unnið starf sitt á sínum tíma eftir sinni bestu getu.

Að sögn Bjarna er ekki raunhæft að ætlast til þess af ráðherrum árið 2008 að þeir hefðu átt að draga úr stærð bankakerfisins. Að mati Bjarna var þegar þarna var komið sögu allt of seint að bregðast við, og vitnaði hann til skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis máli sínu til stuðnings.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×