Heilbrigðisráðuneytið eitt fram úr fjárlögum 21. september 2010 06:15 Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um leiðir til að bregðast við milljarðs króna framúrkeyrslu Sjúkratrygginga, segir í minnisblaði fjármálaráðuneytisins til fjárlaganefndar Alþingis.
Heilbrigðisráðuneytið fór, eitt tólf ráðuneyta, fram úr fjárheimildum á fyrri hluta ársins. Skýrist það einkum með stöðu Sjúkratrygginga sem fóru rúman milljarð króna fram úr heimildum. Þetta kemur fram í minnisblaði fjármálaráðuneytisins til fjárlaganefndar Alþingis um framkvæmd fjárlaga fyrri helming ársins. Í minnisblaðinu segir að útgjöld ríkissjóðs séu í heild 13,3 milljörðum króna innan fjárheimilda og 22,2 milljörðum að teknu tilliti til fluttra fjárheimilda frá fyrra ári. Fram kemur að rekstur stofnana sé að langstærstu leyti í samræmi við áætlanir. „Í heild sýnir uppgjörið að stofnanir og ráðuneyti halda almennt vel utan um útgjöld og eru í flestum tilfellum innan fjárheimilda. Liðum með útgjöld umfram heimildir fækkar verulega milli ára og nokkrar stofnanir sem undanfarin ár hafa átt við verulega rekstrarerfiðleika að etja, eru komnar innan fjárheimilda,“ segir í minnisblaðinu. Þessum árangri þurfi að fylgja vel eftir með áframhaldandi aðhaldi í rekstri til að tryggja megi að rekstur ríkissjóðs endi innan fjárheimilda á árinu öllu. Þótt ráðuneyti í heild sé innan heimilda er ekki þar með sagt að hið sama gildi um alla fjárlagaliði þess. Þannig kemur fram í minnisblaðinu að átta framhaldsskólar voru reknar yfir heimildum. Einnig greiðslur vegna lífeyrisskuldbindinga, ríkisábyrgða og málskostnaðar í opinberum málum. Þá kemur fram að í tilvikum nokkurra liða sem enn eru innan heimilda hafi nú þegar verið óskað eftir viðbótarheimildum í fjáraukalögum vegna áætlaðs halla á síðari hluta ársins. Stærstu liðirnir sem þar um ræðir eru vaxtabætur, barnabætur og Fæðingarolofssjóður. Styrking krónunnar á fyrri hluta ársins hefur nokkur áhrif á ríkisútgjöldin. Eru heildaráhrif þess áætlaðir 1,5 milljarðar til lækkunar fjárheimildum. Enn er óvíst hvaða áhrif gengisþróunin hefur á endanlegar niðurstöður ársins. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar Sjá meira