Innlent

Neytendasamtökin krefja Landsnet skýringa

Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, hefur krafið Landsnet skýringa á því hvað sé við átt þegar fyrirtækið hafnar allri ábyrgð á tjóni vegna rafmagnstruflana sem ollu nýverið skemmdum í rafmagnstækjum, nema ef orsökina megi rekja til mistaka starfsmanna Landsnets.

Fyrr í þessum mánuði urðu miklar rafmagnstruflanir sem ollu skemmdum á raftækjum. Landsnet, sem sér um dreifingu rafmagns, vísaði frá sér ábyrgð vegna þessa. Neytendasamtökin hafa því sent Landsneti bréf þar sem nánari skýringa á afstöðu fyrirtækisins er óskað.  Í bréfinu er vísað í lög um skaðsemisábyrgð sem taka til ábyrgðar dreifingaraðila.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×