Engar arðgreiðslur frá Orkuveitunni 21. september 2010 16:48
Eigendur Orkuveitu Reykjavíkur ákveðið að fara að tillögu borgarráðs frá því á dögunum og fella arðgreiðslur frá fyrirtækinu tímabundið niður. Í einróma bókun á fundi eigenda segir að alla jafna sé eðlilegt að gera kröfur um arð af OR enda hafi það verið gert frá stofnun fyrirtækisins óháð stöðu þess. Bent er á í tilkynningu frá Orkuveitunni að síðustu tvö ár hafi arðgreiðslur verið lækkaðar um helming og við núverandi aðstæður í rekstri OR sé talin ástæða til að ganga lengra og fella þær alveg niður tímabundið. Þá er þess getið að stjórn OR ákvað í síðasta mánuði að grípa til róttækra aðgerða í rekstri fyrirtækisins. Tekjur verða auknar með hækkun gjaldskrár, ákveðið var að selja eignir og því var beint til eigenda að falla frá arðgreiðslum, sem eigendur hafa nú orðið við. „Stjórn ákvað einnig að fela forstjóra OR að ráðast í umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir. Markmið þeirra er 2 milljarða hagræðing í rekstri OR," segir einnig en reiknað er með að sparnaðarverkefni verði búin að skila 900 milljónum króna í árslok. Fundaröð með forstjóra að ljúka „Auk þess að hafa átt fund með trúnaðarmönnum starfsfólks, lýkur í þessari viku röð 20 funda, sem Helgi Þór Ingason forstjóri á með öllu starfsfólki OR, í því skyni að finna hagræðingarleiðir. Fram hefur komið að allt er undir í þeim aðgerðum, sem standa yfir," segir einnig í tilkynningunni. Á fundi stjórnar OR í dag var framgangur ákvarðana stjórnar kynntur. „Varðandi eignasölu var lögð fram tillaga um verklagsreglur við sölu eigna og eiga þær að tryggja jafnræði og gegnsæi við sölu auk þess að hámarksverð fáist fyrir þær. Tillagan gerir ráð fyrir að stjórn OR samþykki fyrirfram hvaða eignir verða seldar auk þess sem endanlegir samningar koma til afgreiðslu stjórnar." Þá segir að staða hagræðingar innan OR hafi einnig kynnt og af því tilefni var einróma samþykkt svohljóðandi bókun: „Í ljósi minnisblaðs og greinargerðar forstjóra um verklag við hagræðingu innan OR, lýsir stjórn OR ánægju með það víðtæka samráð og samstarf sem viðhaft er og lýsir stuðningi við áherslur forstjóra. Lögð er áhersla á að við aðgerðirnar sé gætt að kjarnaþjónustu fyrirtækisins og einföldun í skipulagi þess. Stjórn leggur traust sitt á að forstjóri og aðrir stjórnendur OR, sem gleggst þekkja til rekstursins, láti sanngirni, jafnrétti og önnur málefnaleg sjónarmið ráða för. Neyðist fyrirtækið til að grípa til svo sársaukafullra aðgerða að segja upp starfsfólki er brýnt að lögum sé fylgt í hvívetna og að gripið verði til mildandi mótvægisaðgerða."
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira