Innlent

Vinnuslys á dekkjaverkstæði

Starfsmaður dekkjaverkstæðis á Akureyri slasaðist þegar stórt vörubílsdekk sprakk, þegar hann var að dæla lofti í það á verkstæðinu undir kvöld í gær.

Hann hlaut meðal annars áverka á kviði, enda var höggið svo mikið að föt hans rifnuðu. Hann var fluttur á sjúkarhúsið á Akureyri, en Fréttastofunni er ekki nánar kunnugt um líðan hans.

Vinnueftirlitið og lögreglan rannsaka tildrög slyssins






Fleiri fréttir

Sjá meira


×