Krabbamein dró 562 til dauða á síðasta ári 21. september 2010 09:05 Mynd: Stefán Karlsson
Á síðasta ári létust alls 2.002 einstaklingar, 969 konur og 1.033 karlar. Ekki hafa orðið teljandi breytingar varðandi dánartíðni eftir helstu flokkum dánarmeina frá fyrra ári. Vegna fámennis á landinu geta þó tilviljanasveiflur milli ára verið nokkrar og ber því að taka samanburði um dánarmein milli einstakra ára varlega. Hagstofa Íslands hefur nú birt dánarmein fyrir árið 2009. Gögnin byggja á dánarvottorðum allra einstaklinga sem létust á árinu 2009 og áttu lögheimili á Íslandi við andlát. Helstu dánarmein eru nú sem fyrr, sjúkdómar í blóðrásarkerfi og þá aðallega hjarta- og heilaæðasjúkdómar. Á árinu 2009 létust 729 af sjúkdómum í blóðrásarkerfi, þar af 350 úr blóðþurrðarhjartasjúkdómum, 146 konur og 204 karlar. Alls létust 159 úr heilaæðasjúkdómum, 84 konur og 75 karlar. Krabbamein eru næst stærsti flokkur dánarmeina. Á árinu 2009 létust 562 af völdum illkynja æxla eða krabbameina, 252 konur og 310 karlar, sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Af þeim létust 133 úr lungnakrabbameini, 69 konur og 64 karlar. Á árinu létust 56 vegna illkynja æxlis í eitil- og blóðmyndandi vef, 22 konur og 34 karlar. Þá létust 50 vegna krabbameins í ristli, 19 konur og 31 karl. Auk þess létust 36 konur úr illkynja æxli í brjósti og 53 karlar úr illkynja æxli í blöðruhálskirtli. Aðrar tegundir illkynja æxla voru fátíðari. Þriðji stærsti flokkur dánarmeina eru sjúkdómar í öndunarfærum en úr þeim dóu 175 einstaklingar árið 2009, þar af 102 einstaklingar úr langvinnum neðri öndunarfærasjúkdómum, 58 konur og 44 karlar. Dauðsföll vegna ytri orsaka eru fjórði stærsti flokkurinn. Á árinu 2009 létust 118 af völdum ytri orsaka, 39 konur og 79 karlar, það er svipuð tíðni og undanfarin ár. Af þeim voru dauðsföll sem tengdust óhöppum almennt, alls 65 og í þeim hópi voru 25 konur og 40 karlar. Alls létust 10 manns í umferðarslysum. Sjálfsvíg voru 36 á árinu og féllu 7 konur og 29 karlar fyrir eigin hendi. Það er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Árið 2009 voru skráð 140 ótímabær dauðsföll á Íslandi. Ótímabær dauðsföll eru andlát vegna tiltekinna dánarorsaka sem hefði mátt komast hjá með viðeigandi meðferð eða forvörnum. Vefur Hagstofunnar.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira