Innlent

Kveiktu viljandi í fornri kirkju

Fjögur ungmenni kveiktu vísvitandi í Krýsuvíkurkirkju. Fréttablaðið/Stefán
Fjögur ungmenni kveiktu vísvitandi í Krýsuvíkurkirkju. Fréttablaðið/Stefán

Fjögur ungmenni stóðu á bak við brunann þegar Krýsuvíkurkirkja brann til kaldra kola í janúar síðastliðnum. Þetta upplýsti Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfirði, á bloggsíðu sinni í gær. Segir Þórhallur að ungmennin hafi farið til Krýsuvíkur í þeim eina tilgangi að kveikja í kirkjunni, sem var byggð árið 1857.

Krýsuvíkurkirkja var afar fjölsótt og mörgum sjónarsviptir. Þórhallur segist biðja fyrir gjörningsmönnum og heitir því að kirkjan muni rísa á ný, „með blessun Guðs og hjálp góðra manna“. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×