Innlent

Kostar á fimmta þúsund að nota smokk daglega

Erla Hlynsdóttir skrifar
Að meðaltali smitast sex manns daglega af klamydíu hér á landi. Smokkar geta spornað við útbreiðslunni.
Að meðaltali smitast sex manns daglega af klamydíu hér á landi. Smokkar geta spornað við útbreiðslunni.
Þrjú ungmenni undir 25 ára aldri smitast að meðaltali af klamydíu á degi hverjum hér á landi. Á sama tíma eru smokkar flokkaðir sem munaðarvara í hæsta skattþrepi.

Íris Björg Jónsdóttir, skólahjúkrunarfræðingur hjá Menntaskólanum í Reykjavík, hefur áhyggjur af því hversu dýrar getnaðarvarnir eru. „Rannsóknir sýna að það er samdráttur í sölu getnaðarvarna," segir Íris. Ekki liggur fyrir hvort kreppan hefur þau áhrif að fólk kaupir síður getnaðarvarnir eða hvort skorti á fræðslu um getnaðarvarnir er þar um að kenna. Hver sem skýringin er þykir ljóst að þróunin er ekki í rétta átt.

Íris Björg var gestur Heimis Karlssonar og Kolbrúnar Björnsdóttur Í bítinu í morgun þar sem hún ræddi um getnaðarvarnir í tilefni þess að Alþjóða getnaðarvarnadagurinn er á sunnudag.

Íris starfar einnig fyrir Tótalráðgjöf sem sér um alhliða ráðgjöf til ungs fólks, meðal annars á sviði kynferðismála.

Getnaðarvarnir eru í hæsta skattþrepi þar sem greiddur er 25,5% virðisaukaskattur af þeim. Einn smokkur kostar um 150 krónur. Ef notaðir eru fjórir smokkar í viku kostar það því um 2400 krónur á mánuði. Sé einn smokkur notaður daglega að meðaltali fer kostnaðurinn upp í um 4500 á mánuði.

Íris undrast að smokkar séu skattlagðir eins og munaðarvara á sama tíma og klamydíusmitum fjölgar. Á síðata ári smituðust um 1200 ungmenni undir 25 ára aldri af klamidíu, sem er algengasti kynsjúkdómurinn. Heildarfjöldi greindra smita, hjá öllum aldurshópum, var um 2300 á liðnu ári. Samkvæmt því greinast að meðaltali sex einstaklingar daglega með klamydíu.

„Unga fólkið segir að því finnist smokkar of dýrir," segir Íris. Konur kvarta einnig undan því að hormónagetnaðarvarnir, svo sem pillan, hafi hækkað mjög í verði.

Að mati Írisar er nauðsynlegt að ríkið niðurgreiði getnaðarvarnir. Einnig leggur hún áherslu á fræðslu um getnaðarvarnir, ekki aðeins til ungmenna heldur einnig til foreldra sem eiga börn á unglingsaldri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×