Innlent

Manninum líklega sleppt að loknum yfirheyrslum

Maðurinn sem var handtekinn á Hvanneyri í nótt grunaður um að hafa haldið fjórum samnemendum sínum við Landbúnaðarskólann á Hvanneyri í gíslingu er í enn í yfirheyrslum hjá lögreglunni í Borgarnesi. Að sögn yfirlögregluþjóns verður honum væntanlega sleppt innan tíðar. Vefmiðillinn Pressan segir að maðurnn sé á skilorði, hann hafi verið dæmdur fyrir líkamsárás á Akureyri í fyrra. Þetta fæst hinsvegar ekki staðfest hjá lögreglunni í Borgarnesi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×