Innlent

Reykur í lyftugöngum í fjölbýlishúsi

Frá vettvangi
Frá vettvangi
Mikinn reyk lagði frá rafmagnsspenni í blokk í Lönguhlíðinni um klukkan sex í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins virðist einhver bilun hafa komið upp í rafmagnsspenninum.

Mikill mannskapur var sendur á vettvang og reykræstu blokkina. Reykurinn var aðallega í lyftugöngum hússins og í kjallara hússins. Engin slys urðu á fólki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×