Hjartastuðtæki í flutningabílum eykur öryggi 24. september 2010 12:53 Fríðar Björg Leifsdóttir, umboðsaðili Lifepack hjartastuðtækjanna, afhendir Inga Þór Hermannssyni, forstöðumanni Landflutninga, fyrsta tækið.
Í tilefni alþjóðlega Hjartadagsins, sem haldinn er í tíunda sinn á heimsvísu á sunnudaginn, hafa Landflutningar-Samskip ákveðið að koma fyrir alsjálfvirkum hjartastuðtækjum í flutningabílum á öllum helstu akstursleiðum félagsins. Þetta er gert til að auka almennt öryggi vegfarenda en hver mínúta getur skipt máli ef einstaklingur fær hjartastopp og þá er mikilvægt að hafa réttan búnað við höndina. „Bílarnir okkar eru alltaf á ferðinni og okkur er umhugað um öryggi samferðarmanna okkar," segir Ingi Þór Hermannsson, forstöðumaður Landflutninga um þessa ákvörðun félagsins. Til að byrja með verður hjartastuðtækjum komið fyrir í bílum sem aka milli Reykjavíkur og Norðurlands, Austurlands og Vestfjarða en samkvæmt tölfræðinni er útkallstími vegna hjartaáfalla á þjóðvegum landsins yfirleitt lengri en 5 mínútur. Það getur því skipt sköpum að hafa svona tæki í vöruflutningabílum Landflutninga-Samskipa en tækin eru sömu tegundar og hjartastuðtækin sem eru í öllum sjúkrabílum landsins, þyrlu Landhelgisgæslunnar og víðar. Tækin eru alsjálfvirk, krefjast ekki sérfræðiþekkingar og eru mjög einföld í notkun. Bílstjórar félagsins verða þjálfaðir í notkun þeirra á næstunni og munu þá geta brugðist hratt við, ef á reynir, og veitt aðstoð. „Það eru GPS tæki í flutningabílunum og alltaf hægt að staðsetja þá nákvæmlega ef þörf er á aðstoð. Það má því segja að kjörorð okkar- á ferðinni fyrir þig - eigi vel við en með þessu viljum við leggja okkar af mörkum við björgun mannslífa," segir forstöðumaður Landflutninga. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fær um 300 útköll á hverju ári vegna hjartastopps og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Hjartaverndar deyja árlega um 700 manns á Íslandi vegna sjúkdóma í blóðrásarkerfi.
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira