FLE: Ekki verið bent á mistök endurskoðenda Hafsteinn Hauksson skrifar 24. september 2010 19:04
Formaður Félags löggiltra endurskoðenda segir stéttina draga þann lærdóm af hruninu að menn þurfi að vara sig á efnahagsástandinu við reikningsskil. Erfitt sé hins vegar að benda á mistök endurskoðenda. Félag löggiltra endurskoðenda hélt upp á 75 ára afmæli sitt með ráðstefnu á hótel Hilton Nordica í dag. Ráðstefnan bar yfirskriftina Á vit framtíðar með reynslu fortíðar. En hvað hafa endurskoðendur lært af reynslunni? „Það er verið að fara yfir það hér á þessari ráðstefnu, en við höfum auðvitað lært það að menn þurfa að vara sig á efnahagsástandinu," segir Þórir H. Ólafsson, formaður FLE, um lærdóm endurskoðenda af hruninu. „Það geta verið sveiflur í því, bæði upp og niður, sem koma með jöfnu millibili. Menn þurfa að hafa það í huga við mat á þeim liðum sem koma inn í reikningsskilin." Endurskoðendum hefur legið á hálsi að hafa vanrækt skyldur sínar í aðdraganda hrunsins, nú síðast í skýrslu þingmannanefndar Atla Gíslasonar. Þórir segir það að hrun hafi orðið ekki nægilega ástæðu eitt og sér til að fullyrða að störfum heillar stéttar hafi verið ábótavant. Vinnugögn endurskoðenda séu til dæmis ekki opinber, heldur aðeins niðurstaða þeirra. -En gerðu endurskoðendur þá engin mistök? „Það er alveg hugsanlegt að þeir hafi gert mistök í aðdraganda hrunsins. Það er þó afskaplega erfitt að benda á hver þau eru og það hefur reyndar ekki verið gert, heldur aðeins settar fram almennar fullyrðingar um að svo hafi verið." -Hvað um lán til eigenda með litlum eða engum veðum, ofmetna viðskiptavild og vanmetna áhættu - er þetta ekkert sem endurskoðendur gætu borið ábyrgð á? „Úr því þú nefnir vanmetna áhættu, þá er ekkert víst að áhætta hafi verið vanmetin. Það kemur bara fram í vinnugögnum viðkomandi endurskoðenda. Varðandi viðskiptavild, þá er þar farið eftir ákveðnum aðferðum við að meta viðskiptavildina. Það sem gerist í íslensku efnahagsumhverfi er að skyndilega lokast á erlent fjármagn til að endurfjármagna þau lán sem fyrirtæki tóku til að fjárfesta í viðskiptavildinni. Þetta gerir það að verkum að þau ná ekki að halda viðskiptavildinni. Hún kann að vera til staðar eftir sem áður, en ef fjármagnið skortir og fyrirtækin skortir ráð yfir þessu fjárstreymi, þá fer þetta illa. Það er ekki þar með sagt að viðskiptavildin hafi verið ofmetin í reikningum á þeim tímapunkti þegar endurskoðunin fer fram," segir Þórir. Göran Tidström, varaforseti alþjóðasamtaka endurskoðenda, tekur í svipaðan streng og segir endurskoðendur einfaldlega hafa starfað innan ramma fyrirliggjandi reikningsskilastaðla. Áherslan eigi í framhaldinu að vera á að efla staðlana. Hann segir að staðlar og regluverk hafi brugðist, en ekki endurskoðendurnir.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira