Flestir látast 3. janúar 24. september 2010 05:30 Á síðustu fjórtán árum hafa að meðaltali flestir látist 3. janúar ár hvert. Áberandi fleiri deyja í vetrarmánuðunum en yfir sumartímann. Helmingi færri hafa andast síðustu dagana í júlí en fyrstu dagana í janúar samkvæmt tölfræðinni.
Talsverðar sveiflur má sjá þegar dánartíðni á Íslandi er skoðuð eftir dögum. Flestir hafa látist í janúar á ári hverju síðastliðin fjórtán ár, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Fleiri látast að meðaltali í hverjum mánuði yfir vetrartímann en yfir sumarið. Flestir hafa dáið í janúar, febrúar, mars og desember ár hvert. Á síðustu fjórtán árum hafa að meðaltali 5,7 látist á hverjum degi í janúar, 5,5 á hverjum degi í febrúar, og 5,4 á hverjum degi í mars. Fæstir látast yfir hásumarið, 4,6 á hverjum degi í júlí miðað við meðaltal síðustu fjórtán ára. Ólöf Garðarsdóttir, dósent í sagnfræði á menntavísindasviði Háskóla Íslands, og sérfræðingur á sviði mannfjöldarannsókna, segir þessar sveiflur þekktar. Þær tengist einkum uppsveiflu á tíðni inflúensu yfir vetrartímann. „Þetta eru svipaðar sveiflur og á öðrum Vesturlöndum," segir Ólöf. „Þar sem sjúklingar fá þjónustu á hátæknisjúkrahúsum sést ekki teljandi sveifla, en þegar flensan stingur sér niður er meiri hætta á að þeir sem eru veikir fyrir deyji." Þegar einstakir dagar eru skoðaðir sést að á síðustu fjórtán árum hafa flestir látist 3. janúar ár hvert, samtals 99 einstaklingar á síðustu fjórtán árum, eða 7,1 að meðaltali ár hvert. Næstflestir hafa látist 8. apríl ár hvert, samtals 95 síðustu fjórtán ár, eða 6,8 að meðaltali á ári hverju. Fæstir hafa andast síðustu dagana í júlí á síðustu árum. Þannig eru þeir sem dáið hafa 27. júlí síðustu fjórtán ár ríflega helmingi færri en þeir sem deyja 3. janúar ár hvert. Þann 27. júlí síðustu fjórtán ár létust 45 einstaklingar, eða um 3,2 að meðaltali þann dag á hverju ári. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira