Innlent

Rektorinn á Hvanneyri: Þetta verður ekki liðið

Erla Hlynsdóttir skrifar
Ágúst Sigurðsso, rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri
Ágúst Sigurðsso, rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri Mynd: GVA
Nemendur og starfsfólk við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri er miður sín eftir að nemandi við skólann tók fjóra samnemendur sína í gíslingu í nótt og hótaði þeim með hnífi.

Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, segir málið nú alfarið í höndum lögreglunnar. „Við lítum þetta mjög alvarlegum augum. Þetta verður ekki liðið," segir Ágúst.

Samkvæmt heimildum fréttastofu kom atvikið upp í kjölfar gleðskapar sem virðist hafa farið úr böndunum.

Ágúst bendir á að á Hvanneyri sé lítið og friðsælt samfélag sem muni taka á þessu atviki saman. Ágúst býst fastlega við því að umræddur nemandi verði rekinn úr skólanum. Þeir nemendur sem urðu vitni að atvikinu hafa fengið áfallahjálp.

Maðurinn er nú í haldi lögreglu og verður yfirheyrður frekar í dag.


Tengdar fréttir

Gíslataka á Hvanneyri - maðurinn enn í haldi

Maður vopnaður hnífi hélt fjórum nemendum við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í gíslingu í nótt. Lögregla fékk tilkynningu um málið um klukkan hálfþrjú og fór strax á vettvang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×