Innlent

Sex mánaða skilorð fyrir árás með skiptilykli

Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að berja vinnufélaga sinn með skiptilykli. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi og í ljósi þess að hann er með hreint sakavottorð að öðru leyti fannst dómara hæfilegt að skilorðsbinda dóminn. Árásin átti sér stað í maí í húsnæði fiskverkunnar í Reykjavík.

Maðurinn marðist nokkuð á höfði og fékk sár á nef. Dómarinn segir í dóminum að við ákvörðun refsingar verði að líta til þess að atlagan hafi verið hættuleg og hefði getað valdið alvarlegri áverkum en raunin varð.

Ákærði var auk þess dæmdur til að greiða fórnarlambinu 150 þúsund krónur í miskabætur og 100 þúsund krónur vegna kostnaðar við að halda fram bótakröfunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×