Innlent

Mikil rigning á Eyjafjallajökli - búist við miklu í ám

Eyjafjallajökull
Eyjafjallajökull Mynd/Vilhelm

Veðurstofa Íslands spáir talsverði úrkomu á Suðurlandi á morgun, þá sérstaklega á svæðinu á Eyjafjallajökli. Búist er við því að mikið verði í ám á svæðinu vegna hlýinda sem eru sögð fylgja í kjölfarið.

Reiknað er með að úrkoman verði áköfust frá hádegi og fram á kvöld. Draga á úr úrkomunni en viðbúið er að hún færist í aukana á ný um miðnætti annað kvöld og framundir morgun á sunnudag. Gert er ráð fyrir að vindur verði hvass á fjöllum fram á sunnudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×