Innlent

Ætla að ná í ellefu milljarða

Starfshópur á vegum fjármálaráðuneytis reynir að ná inn ellefu milljörðum króna í ríkiskassann með sjö tillögum að hærri sköttum.Fréttablaðið/GVA
Starfshópur á vegum fjármálaráðuneytis reynir að ná inn ellefu milljörðum króna í ríkiskassann með sjö tillögum að hærri sköttum.Fréttablaðið/GVA
Lagt er til í skattatillögum starfshóps á vegum fjármálaráðuneytis að erfðafjárskattur verði hækkaður um fimmtíu prósent, fjármagnstekjuskattur um ellefu prósent, undanþágur fríhafnarinnar frá vörugjaldi og virðisaukaskatti á áfengi og tóbaki verði felldar niður og tekinn verði upp sérstakur bankaskattur líkt og í Svíþjóð og Bretlandi.

Starfshópurinn var settur á laggirnar í apríl við mótun hugmynda að skattabreytingum til að ná fram þeim áformum ríkisstjórnarinnar að auka tekjur ríkisins um ellefu milljarða króna á næsta ári. Fyrstu áfangaskýrslunni var skilað til fjármálaráðherra í vikunni.

Í skattatillögunum er jafnframt lagt til að skoðað verði að hækka auðlegðarskatt, sem tekinn var upp í fyrra. Í rökstuðningi starfshópsins er tekið fram að skattlagningin kunni að leiða til þess að efnafólk komi fé sínu fyrir erlendis eða flytji úr landi. Engin trygging sé fyrir lægri skattgreiðslum í öðru landi þar sem fjármagnstekjur séu víðast hvar hærri en hér.

- jab



Fleiri fréttir

Sjá meira


×