Innlent

Bílskúr brann á Hvammstanga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mikil mildi var að ekki fór verr þegar að bílskúr brann á Hvammstanga um eittleytið í dag. Mikill eldsmatur var í skúrnum og eru skemmdir töluverðar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi.

Litlu munaði að eldurinn læsti sig í nærliggjandi íbúðarhús en það gerðist sem betur fer ekki. Íbúar hússins voru ekki heimavið þegar að eldurinn kom upp og ekki er vitað um eldsupptök.

Slökkviliðið á Hvammstanga og slökkviliðið á Blönduósi slökktu eldinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×