Innlent

Kláraði fjóra hamborgara á rúmum tveimur mínútum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Keppt í hamborgaraáti. Mynd/ Matthías Þórarinsson.
Keppt í hamborgaraáti. Mynd/ Matthías Þórarinsson.
Búast má við að fjöldi manns leggi leið sína í Smáralindina um helgina þar sem Matardagar 2010 fara fram.

Í gær fóru meðal annars fram Íslandsmót matreiðslu- og framleiðslunema, keppni um besta sjónvarpskokkinn og Íslandsmeistaramótið í hamborgaraáti. Magnús Ingi á Sjávarbarnum og ÍNN vann titilinn besti sjónvarpskokkurinn. Hver kokkur átti að útbúa gómsæta afmælisveislu fyrir 10 ára krakka á heilsusamlegum nótum.

Í Íslandsmeistaramótinu í hamborgaraáti voru það kraftajötnar sem öttu kappi auk nokkurra ungra áhorfenda úr salnum. Árni Hjaltason bar sigur úr bítum, en hann kláraði fjóra hamborgara á ótrúlega stuttum tíma: 2 mínútum og 23 sekúndum.

Meðfylgjandi myndir tók Matthías Þórarinsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×