Ráðherrum ber ekki saman Heimir Már Pétursson skrifar 22. nóvember 2010 13:19 Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.
Ráðherrum byggðamála og sjávarútvegs ber ekki saman um áhrif ákvörðunar sjávarútvegsráðherra um frjálsar veiðar á úthafsrækju, á veð rækjuútgerða hjá Byggðastofnun. Ráðherra byggðarmála segir að afskrifa hafi þurft 700 milljónir vegna þessa. Sjávarútvegsráðherra segir það ekki rétt. Einar K. Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra spurði Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra, sem fer með byggðamál, út í áhrif ákvörðunar Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar á fjárhagslega stöðu Byggðastofnunar. Iðnaðarráðherra svaraði þingmanninum hinn 4. október og sagði að almennt væru fyrirtæki í rækjuveiðum og vinnslu í skilum við Byggðastofnun. Á því væru hins vegar undantekningar og væri það mat Byggðastofnunar að vegna afnáms rækjukvótans sé óhjákvæmilegt að gjaldfæra 700 millj. kr. á afskriftareikning stofnunarinnar vegna þriggja skuldara af átta í greininni. Ljóst væri að staða Byggðastofnunar væri mjög erfið þar sem eiginfjárhlutfall stofnunarinnar 30. júní sl. væri komið niður í 5,18%. Meginástæða þessarar stöðu væri ófyrirséð framlög í afskriftareikning útlána sem námu þá samtals 1,1 milljarði kr., þar af 700 milljónir vegna þriggja rækjufyrirtækja. Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra. Í fréttum Stöðvar tvö á föstudag sagði Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hins vegar þetta þegar hann var spurður hvort ekki væri rétt að auka þyrfti eigiðfé Byggðastofnunar vegna ákvörðunar hans: „Nei alls ekki. Fjárhagsvandi Byggðastofnunar getur verið kominn vegna vanda þessara fyrirtækja og fleiri. En hann byggist ekki á því að hafa veð í óveiddri rækju." Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sagði jafnframt í svarinu til Einars K. Guðfinssonar að henni hafi ekki verið kunnugt um þessar ráðagerðir sjávarútvegsráðherra fyrir fram og samkvæmt upplýsingum frá Byggðastofnun gilti það sama um þá stofnun. Ljóst sé að vandi Byggðastofnunar sé fyrst og fremst til kominn vegna afnáms rækjukvótans, en aðrir þættir spili líka þar inn í. Rætt hafi verið við fulltrúa fjármálaráðuneytisins um hvernig leysa megi fjárhagsvanda Byggðastofnunar.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira