Enginn ráðherra við mestu atvinnusköpun landsbyggðar 3. nóvember 2010 18:45
Allt að 170 störf skapast á Reyðarfirði við smíði nýrrar kersmiðju Alcoa Fjarðaáls en fyrsta skóflustunga var tekin í dag. 70 ný störf til frambúðar verða til á Austurlandi þegar rekstur verksmiðjunnar hefst eftir átján mánuði.Daginn eftir að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lýsti í fréttum litlum áhuga á frekari uppbyggingu í áliðnaði hérlendis tók starfsmaður Alcoa-Fjarðaáls, Elías Jónsson, eða Elli á B-vaktinni, fyrstu skóflustungu að fjárfestingu, sem felur í sér mestu atvinnusköpun utan höfuðborgarsvæðsins frá því núverandi ríkisstjórn settist að völdum, og hlaut fyrir lófaklapp samstarfsmanna.Hér er að hefjast smíði kersmiðju, þar sem fram mun fara endurnýjun og viðhald á kerjum álversins, - í byggingu sem verður yfir fjögur þúsund fermetrar að stærð. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, segir þetta merkilegan áfanga, ekki aðeins fyrir fyrirtækið, heldur svæðið í heild. Þetta sé 3,5 milljarða króna fjárfesting sem skapi 170 störf á byggingartíma og smíði ljúki í apríl árið 2012. Kersmiðjan skapi 70 störf til frambúðar, til viðbótar við þau rúmlega 800 störf sem eru hjá Fjarðaáli.Raunar er þessi uppbygging, ásamt framleiðsluaukningu Alcan í Straumsvík, eina nýsköpunin sem eitthvað kveður að í iðnaði hérlendis í tíð núverandi ríkisstjórnar. Athygli vakti að enginn ráðherra var viðstaddur athöfina á Reyðarfirði í dag, eins og jafnan hefur tíðkast við tíðindi sem þessi, og fékkst sú skýring frá talsmanni Alcoa að þeim hafi ekki verið boðið og því hafi þeir sennilega ekki vitað af þessu. Erna Indriðadóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa, segir að litið hafi verið á þetta sem athöfn fyrst og fremst fyrir heimamenn og því hafi aðeins starfsmönnum og bæjarráði Fjarðabyggðar verið boðið.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira