Meira í velferðarmál á næsta ári en 2007 23. desember 2010 06:00 Árni Mathiesen lagði fram fjárlagafrumvarp ársins 2007. Við kynningu þess sagði hann stöðu ríkissjóðs vera að styrkjast. Það gæfi aukna möguleika á að gera ýmsa hluti. Í frumvarpinu var gert ráð fyrir 15,5 milljarða afgangi. fréttablaðið/pjetur
Útgjöld ríkisins til tiltekinna velferðarmála verða hærri á næsta ári en var árið 2007. Samanburður sem gerður var í fjármálaráðuneytinu á fjárlagafrumvörpum áranna 2007 og 2011 leiðir þetta í ljós. Í honum er ekki tekið tillit til breytinga sem urðu á frumvörpunum í meðförum þingsins. Um er að ræða útgjöld til lífeyristrygginga, sjúkratrygginga, atvinnuleysistrygginga, framhaldsskóla og háskóla. Í fjárlagafrumvarpi ársins 2007 námu útgjöld til þessara málaflokka tæplega 90 milljörðum króna. Var það 6,84 prósent af vergri landsframleiðslu þess árs. Í frumvarpi næsta árs voru rúmlega 126 milljarðar ætlaðir til áðurgreindra málaflokka. Það eru 7,76 prósent af landsframleiðslu. Sé fjárhæðin frá 2007 núvirt nemur hún 120 milljörðum króna. Útgjöld til allra málaflokkanna hafa hækkað nokkuð í krónum talið en standa svo að segja í stað sé miðað við hlutfall af vergri landsframleiðslu. Mesti munurinn er á útgjöldum til atvinnuleysistrygginga en þau hafa hækkað um 20 milljarða milli áranna. Sem hlutfall af landsframleiðslu hafa útgjöld til sjúkratrygginga og háskóla hækkað en lækkað til lífeyristrygginga og framhaldsskóla. Verg landsframleiðsla árið 2007 var 1.308 milljarðar króna en er áætluð 1.628 milljarðar á næsta ári. Vaxtagjöld ríkisins hafa vaxið gríðarlega á milli áranna 2007 og 2011. Fyrrnefnda árið voru þau tæpir sautján milljarðar króna, 1,28 prósent af vergri landsframleiðslu, en á næsta ári munu þau nema 75 milljörðum króna og vera 4,61 prósent af landsframleiðslu. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans Sjá meira