Hafnar ásökun um misnotkun kirkju 23. desember 2010 06:00 Stefán Einar Stefánsson forstöðumaður Hins íslenska Biblíufélags segist sinna ýmsum ótengdum verkefnum á skrifstofu félagsins.Fréttablaðið/Arnþór
Bjarki Steingrímsson, stjórnarmaður í VR, segir Stefán Einar Stefánsson, siðfræðing og forstöðumann Hins íslenska Biblíufélags, nota skrifaðstöðu í Hallgrímskirkju til sinna eigin afnota. „Óska ég eftir að háttvirtur biskup Íslands hr. Karl Sigurbjörnsson hlutist til um að settar verði skýrar reglur um afnot starfsfólks kirkjunnar á eignum okkar sóknarbarna. Að Hallgrímskirkja skuli vera vettvangur lítils hóps aðila sem undirbúa að fella sitjandi formann VR og minnihluta stjórnar félagsins er harmleikur,“ segir Bjarki í bréfi til biskups. Stefán Einar er bæði guðfræðingur og siðfræðingur. Hann er félagsmaður í VR og hefur að eigin sögn undanfarið aðstoðað félagið vegna ósættis innan stjórnar þess. Nú er svo komið að hann segist íhuga framboð til formanns stjórnarinnar á aðalfundi í vetrarlok. Stefán segir grátlegt að Hallgrímskirkja og biskupinn skuli dregin inn í umræðuna um málefni VR. „Ég er búinn að svara þessu gagnvart biskupi og það er alveg samhljómur milli okkar í þessu máli,“ segir Stefán um notkunina á skrifstofunni í Hallgrímskirkju. „Ég kalla hingað oft til fundar við mig fólk sem ég sinni ráðgjafaverkefnum fyrir. Ég kalla líka hingað nemendur mína sem ég kenni við háskólana tvo. Það hentaði mér þennan dag að hitta þar fólk sem hefur miklar áhyggjur af þróun mála í VR. Mig reyndar grunaði strax að óheilindafólk myndi reyna að draga þetta inn í umræðuna þannig að ég flutti fundinn annað um leið og ég áttaði mig á þeirri hættu,“ segir Stefán Einar. - gar
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira