Háðir því að þingmenn breyti lögum 23. desember 2010 06:00 Lögreglumenn þurfa að vera við öllu búnir, hér eru nemar úr Lögregluskólanum á sjóæfingu.Fréttablaðið/Vilhelm
Áformað er að 20 nemendur hefji nám í Lögregluskóla ríkisins í byrjun febrúar. Til að svo megi verða þarf Alþingi að samþykkja frumvarp um breytingar á náminu eftir að þingmenn koma úr jólafríi um miðjan janúar, segir Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lögregluskólans. Áður en þingmenn fóru í jólafrí var lagt fram frumvarp um breytingu á lögreglulögum. Þar er lagt til að Lögregluskólinn hætti að borga nemum laun á síðasta hluta námsins. Arnar segir samþykkt þessa frumvarps forsendu þess að skólinn taki við nemendum. Hingað til hafa lögreglunemar setið eina önn í skólanum launalaust, og farið að því loknu í starfsnám þar sem þeir hafa fengið laun hjá því embætti sem þeir hafa starfað við. Að lokum hafa þeir setið aðra önn í skólanum og fengið laun frá skólanum á meðan. Verði frumvarpið, sem lagt er fram af fulltrúum allra flokka nema Hreyfingarinnar, að lögum breytist þetta fyrirkomulag. Lögregluskólinn mun þá greiða laun nemanna meðan á starfsnámi stendur, en þeir verða ólaunaðir í bóknáminu. Þetta mun hafa í för með sér hagræði þar sem nú verður tryggt að nemar geta fengið starfsnám þó að lögregluembættin hafi ekki efni á að ráða sumarmenn til starfa, segir Arnar. Bóknámið verði nú að fullu lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. - bj
Mest lesið Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Sjá meira