Árni Páll neitar ásökunum um pólitíska ráðningu 3. ágúst 2010 12:00 Árni Páll þvertekur fyrir að Runólfur hafi verið ráðinn eftir pólitík. Mynd/ GVA.
Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra hefur kallað eftir frekari upplýsingum um skuldamál Runólfs Ágústssonar nýskipaðs umboðsmanns skuldara. Árni Páll neitar því að ráðningin hafi verið pólitísk. Félagsmálaráðherra segir að Runólfur hafi verið ráðinn í kjölfar hæfnismats og niðurstaða þess hafi verið afskaplega skýr. „Það auðvitað munum við birta með rökstuðningi fyrir ráðningunni. Það voru skýr rök fyrir ráðningunni, efnisleg rök. Þetta verður allt kynnt með gagnsæjum hætti," segir Árni Páll. DV greindi frá því í síðustu viku að Runólfur hefði fengið afskrifaðar 500 milljónir króna. „Ég hef rætt það mál við hann og sent bréf í morgun, þar sem ég óskaði eftir frekari upplýsingum um það mál. Það sem hefur verið í umræðunni er flókið og ekki auðvelt að átta sig á því og ég hef beðið um greinargerð um skuldaskil hans og hans félaga aftur í tímann. Ég held að það sé mjög mikilvægt að það ríki enginn vafi um það að umboðsmaður hafi ekki fengið annars konar fyrirgreiðslur en almenningi stendur til boða," segir Árni Páll. Árni Páll segir að Runólfur verði að gera grein fyrir sínum málum. Í kjölfar þess verði hægt að meta stöðuna. Árni Páll segist hafa vitað að Runólfur lagði fram fé í viðskiptum og tapað því. Hann segist ekki hafa haft upplýsingar um skuldaskil hans. Félagsmálaráðherra segir að almennt hafi skuldastaða fólks ekki áhrif á það hvort það nýtur embættisgengis og það sé mikilvægt viðmið. „Hitt er svo aftur annað mál að það skiptir máli að það sé hafið yfir vafa að umboðsmaður hafi ekki fengið önnur kjör við meðferð síns skuldavanda en almennt er í boði og það þarf auðvitað að upplýsa það og það sé ég ekki miðað við þau gögn sem hafa verið í opinberri umræðu," segir Árni Páll.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira