Útilokar ekki að reksturinn verði boðinn út 17. júlí 2010 18:30
Kristján L. Möller, samgönguráðherra, útilokar ekki að rekstur Landeyjarhafnar verði boðin út á næsta ári. Þangað til mun Eimskip leigja höfnina á 350 þúsund krónur á mánuði samkvæmt nýgerðu samkomulagi. Landeyjarhöfn verður formlega tekin í notkun á þriðjudag en þann dag siglir Herjólfur síðustu ferð sína milli Heimaeyjar og Þorlákshafnar. Höfnin kostaði tæpa fjóra milljarða en Eimskip, sem sér um rekstur Herjólfs, mun leigja höfnina á 350 krónur á mánuði en samkomulagið gildir til 1. september á næsta ári. „En það er bara táknræn tala og þeir reka þá svæðið og húsið og hafa umsjón með því. En ríkissjóður er að borga mikla peninga með þessu batteríi öllu saman, þ.e. Herjólfi og siglingunum. Það getur nálgast allt að 500 milljónir," segir Kristján. Miðað við þessar leigutekjur þá tekur níu hundruð fimmtíu og tvö ár að borga upp höfnina. En ætti leigan ekki að vera hærri, til þess ná inn einhverjum peningum fyrir kostnaði? „Jú, en við fáum náttúrulega tekjur inn, farþegatekjur og flutningstekjur og annað slíkt inn, þetta er allt saman reikningsdæmi. Þessi tala sem við erum tala um, leigan á höfninni og húsinu, er meira táknræn tala, þeir verða þarna og reka þetta," segir Kristján. Vel kemur til greina að sögn Kristjáns að bjóða út rekstur hafnarinnar þegar samningurinn við Eimskip rennur út á næsta ári. „Ég útiloka ekki að það komi til útboðs á næsta ári eða framlengingar ef vel gengur. Og þegar og ef við bjóðum þetta út þá verður allt saman boðið, þ.m.t. höfnin, húsið og allt saman," segir Kristján að lokum.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira