Mikilvægt að koma fram við sprautufíkla eins og sjúklinga 1. desember 2010 14:08
Alþjóða Rauði krossinn telur að hægt sé að draga verulega úr útbreiðslu alnæmis ef sprautufíklar væru meðhöndlaðir sem sjúklingar frekar en afbrotamenn. Í skýrslu sem gefin er út af tilefni alþjóðlega alnæmisdagsins, sem er í dag, kemur fram að meðan dregið hefur úr nýmsitun alnæmis í Afríku hefur hún aukist mikið meðal sprautufíkla um allan heim. Í skýrslunni er sagt að stjórnvöld hafi brugðist þessum hópi með því að dæma fólk í fangelsi í stað þess að veita sprautufíklum betri aðgang að heilbrigðiskerfinu og aðstöðu til að fá hreinar nálar og sprautur til að koma í veg fyrir smit og sýkingar. Sprautufíklar vanræktir Rauði krossinn lítur á hina miklu aukningu alnæmissmits meðal sprautufíkla sem almennt heilbrigðisvandamál og sýni þá vanrækslu og mismunun sem þessi hópur þarf að kljást við á hverjum einasta degi. Verði ekkert að gert, standi almenningi jafnt sem sprautufíklum ógn af afleiðingunum því smit geti hæglega borist út fyrir hópinn. Rauði krossinn segir að í löndum þar sem unnið hefur verið markvisst að því að draga úr sjúkdómum og smiti meðal sprautufíkla með því að veita þeim aðgang að heilbrigðisþjónustu, hreinum nálum og sprautum hafi tekist að stemma stigum við því að alnæmissmit meðal þessa hóps aukist og berist til almennings. Rauði krossinn hvetur stjórnvöld til að styðja slík verkefni og veita nægu fé í málaflokkinn. Tuttugu hafa greinst með alnæmi í ár Talið er að um 16 milljónir sprautufíklar séu í heiminum í dag, og að um 3 milljónir þeirra séu smitaðir af alnæmi. Flestir þeirra eru í Austur Evrópu og Asíu, en mikil aukning hefur verið á alnæmissmiti meðal sprautufíkla í flestum löndum heims. Á Íslandi greindust 20 manns með alnæmi á þessu ári, sem er mesti fjöldi nýgreindra á einu ári frá upphafi mælinga. Líkt og annars staðar í Evrópu er aukningin mest meðal sprautufíkla og telur Rauði kross Íslands því að full ástæða sé til að veita þessum hópi aðstoð.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira