Innlent

Úthafsrækjukvóti hefur verið vannýttur

Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra.
Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra.
Jón Bjarnason, sjávarútvegráðherra, segir að úthafsrækjukvóti hafi verið vannýttur á síðustu árum og því þurfi að skoða aðrar leiðir til að nýta stofninn. Útvegsmenn kjósi í mörgum tilfellum að nýta rækjukvóta einungis til að auka framsalsheimildir í öðrum tegundum.

Veiðar á úthafsrækju verða gefnar frálsar á næsta fiskveiðiári samkvæmt ákvörðun sjávarútvegráðherra sem kynnt var á föstudag.

Rækjuafli hefur minnkað stórlega á undanförnum árum. Heildar rækjuafli á síðasta ári nam rúmum tvö þúsund tonnum en leyfilegt var að veiða sjö þúsund tonn.

Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, að stofninn þoli meiri veiði.

„Þegar að veiðistofn hefur ekki verið nýttur nema takmarkað um nokkurn tíman og nokkur ár, þó svo hann eigi að þola það. Þá er ástæða til þess að skoða að það kerfi sem er notað til að deila út aflaheimildum sé að virka. Því það skiptir máli fyrir þjóðarbúið að þeir fiskistofnar sem er heimilt að veiða séu þá nýttir á sjálfbæran hátt samkvæmt þeirri ráðgjöf sem vísindamenn gefa. Það hefur verið óhætt að veiða miklu meiri rækju en gert hefur verið, þess vegna er hún frátekin núna úr kvóta og reynd sóknarstýring á næsta ári."

Útgerðarmenn hafa mótmælt þessari ákvörðun sjávarútvegráðherra og ætla funda með honum á morgun vegna málsins. Ráðherra segir dæmi um að útgerðamenn noti rækjukvótann einungis til að auka aflaheimildir í öðrum tegundum - með svoköllluðu framsali.

„Það eru vafalaust einhver brögð að því að það var hægt að breyta rækju í aðrar fisktegundi, en ég legg áherslu á að þær aflaheimildir í hverri fisktegundir séu þá nýttar til að veiða hana."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×