Hafa ekki áhuga á að nýta kvótann 18. júlí 2010 18:45
Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, vísar því á bug að óbeint sé verið að innkalla aflaheimildir með því að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar. Reynslan sýni að útgerðarmenn hafi ekki áhuga á að nýta kvótann til veiða. Rækjuafli hefur minnkað stórlega á undanförnum árum en heildarafli á síðasta ári nam rúmum tvö þúsund tonnum en þá var leyfilegt veiða sjö þúsund tonn. Það er mat Hafrannsóknarstofnunar að rækjustofninn sé vannýttur en dæmi eru um að útgerðir nýti rækjukvótann einungis til að auka fram-sals-heimildir í öðrum fisktegundum. Veiðar á úthafsrækju verða því gefna frjálsar á næsta fiskveiðiári. Þessu hafa útgerðamenn mótmælt og ætla funda með sjávarútvegráðherra á morgun vegna málsins. Útgerðarmenn líta svo á að með þessu sé ráðherra óbeint að innkalla veiðiheimildir. Þessu vísar ráðherra á bug. „Ef þú horfir á hvernig þetta hefur verið nýtt þá hafa þessar heimildir ekkert verið veiddar. Þá hefur þessi rækja ekki verið veidd þannig að það er ekki hægt að tala um innköllun á aflaheimildum sem ekki hafa verið nýttar í nokkur ár," segir Jón. En er það ekki ljóst að þau útgerðarfyrirtæki sem eiga núna úthafsrækjukvótann, að þau tapa gríðarlegum fjármunum? „Nei, það er ekki rétt. Því fjármunirnir felast í því að veiða rækjuna en ekki að eiga hana óveidda." Hann segir að málið verði endurskoðað í lok næsta fiskveiðiárs. „Þetta er bara aðgerð sem verður tekin á næsta ári og byggir á reynslu undanfarinnar ára vegna þess að þetta hefur ekki gengið upp. Þess vegna er þessu beitt á rækjuna eins og lög heimila. Varðandi aðrar tegundir þá er þessi staða ekki þar uppi að fiskurinn sé ekki veiddur og nýttur." Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, sagði í samtali við fréttastofu í dag mikið tap hafi verið á rækjuveiðum fyrir nokkrum árum. Olíuverð hafi þá verið mjög hátt og afurðaverð lágt. Á yfirstandi fiskveiðiári sé nú þegar búið að veiða um 6 þúsund tonn af rækju og allt bendi til þess að kvótinn verði fullnýttur. Hann sagði ennfremur að aldrei hafi verið leyfilegt að breyta úthafsrækju í aðrar fisktegundir og ný lög um framsalsheimildir taki gildi í haust. Í þessu ljósi sé ákvörðun ráðherra óskiljanleg.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira