Makrílstríð: Breskur þingmaður vill viðskiptabann á Íslendinga SB skrifar 23. ágúst 2010 17:33 Grein Daily Mail
Fyrst hrundu bankarnir, svo gaus Eyjafjallajökull og nú ætla Íslendingar að svipta fiskveiðimenn okkar lífsviðurværinu. Svona hljómar fyrirsögnin á frétt Daily Mail um makrílveiðar Íslendinga. Í greininni rifjar Daily Mail upp þorskastríðið og segir Íslendinga haga sér eins og bandóðir víkingar. „Íslendingar og Færeyingar haga sér eins og forfeður þeirra, víkingarnir, nema nú eru þeir að stela makrílnum okkar," er haft eftir skoska þingmanninum Struan Stevenson. Deilan hófst þegar Ísland og Færeyjar ákváðu að auka makrílkvótann úr 27 þúsund tonnum í 215 þúsund tonn. Daily Mail greinir frá því að í síðustu viku hafi færeyskur togari, Júpíteur, reynd að landa í Peterhead höfninni á austur Skotlandi en veiðimenn þar á bæ hafi vísað togaranum burt. Makrílveiðar eru eitt eitt helsta lífsviðurværi skoskra veiðimanna. Í greininni er jafnframt haft eftir Struan Stevenson að samningsviðræður séu í gangi en skrefið sé stutt í að hefja viðskiptastríð. Hann leggur til að fylgt verði fótspor sjómannana í Peterhead og Íslendingum og Færeyjingum meinað að landa afla sínum. „Við eigum að loka öllum höfnum Evrópusambandsins fyrir færeyskum og íslenskum skipum, koma á viðskiptabanni við þjóðirnar og sýna þeim að okkur sé alvara." Hann segir að nota ætti makríl deiluna sem vopn í samningsviðræðum Evrópusambandsins við Ísland. „Hérna er þjóð sem er komin að samningsborðinu við Evrópusambandið en hvað hafa Íslendinga fært okkur hingað til. Eldgosaösku, fjárhagsvandamál þar sem þeir hafa neitað að borga skuldir sínar. Og nú eru þeir að ráðast á fiskveiðistofna okkar." Lesa má grein Daily Mail hér.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna Sjá meira