Sáttmáli skrifaður fyrir Íslendinga 8. nóvember 2010 04:00 Fundargestir lögðu áherslu á að stjórnarskráin væri sáttmáli sem tryggja ætti fullveldi og sjálfstæði Íslendinga og hún væri skrifuð fyrir fólkið í landinu. fréttablaðið/pjetur
Jafnrétti, lýðræði, mannréttindi, heiðarleiki og réttlæti eru á meðal þeirra helstu gilda sem fundargestir vilja að lögð verði til grundvallar í nýrri stjórnarskrá. Helstu niðurstöður Þjóðfundar um stjórnarskrá sem haldinn var á laugardag voru kynntar á blaðamannafundi í gær. Fundargestir voru um 950 talsins af landinu öllu. Á fundinum voru gildin flokkuð í átta meginflokka sem innihald stjórnarskrárinnar var rætt út frá. Fundargestir lögðu áherslu á að stjórnarskráin væri sáttmáli sem tryggja ætti fullveldi og sjálfstæði Íslendinga og hún væri skrifuð fyrir fólkið í landinu. Þátttakendur greiddu atkvæði um þá þætti sem þeim fannst mestu skipta og hins vegar um þá þætti sem þeim fannst fela í sér nýjungar. Samin var setning á hverju borði um það sem mestu hafði skipt í umræðunni. Þá gafst fundargestum tækifæri til að koma persónulegum tilmælum á framfæri við stjórnlagaþing, Alþingi, fjölmiðla og aðra. Helstu ábendingarnar snerust um að stjórnlagaþing ætti að virða niðurstöður Þjóðfundar, vinnubrögð þess ættu að vera gagnsæ og að stjórnlagaþingmenn ættu að hafa það að leiðarljósi að stjórnarskráin væri skiljanleg og á mannamáli. Úrvinnsla hófst þegar að fundi loknum og niðurstöður liggja að mestu fyrir. Einungis átti eftir að klára að vinna úr persónulegum tilmælum fundargesta. Niðurstöðurnar munu liggja fyrir seinna í vikunni. Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnlaganefndar, sagði þjóðfundinn vel heppnaðan og að góður andi hefði myndast meðal fundargesta. Hún benti á að fundurinn væri gleðiefni fyrir þjóðina í heild. Njörður P. Njarðvík, meðlimur í stjórnlaganefnd, sagði að niðurstöður þjóðfundarins gætu orðið grundvöllur fyrir nýjan þjóðarsáttmála. „Það komu fram afskaplega skýrar ábendingar um mannréttindi, réttlæti og jöfnuð,“ segir Njörður. Meðlimir í stjórnlaganefnd voru sammála um það að þjóðfundurinn hefði verið vel heppnaður og gæti orðið fastur liður í umræðu um mikilvæg málefni í framtíðinni. Fram kom að erlendir fjölmiðlar og fræðimenn hefðu komið til landsins til að fylgjast með framkvæmd fundarins. martaf@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira