Starfsfólk Skinneyjar-Þinganess: Niðurlægjandi jólagjöf Valur Grettisson skrifar 22. desember 2010 14:09 Sjópokinn kemur eflaust að gagni fyrir ýmsa. Starfsfólk er þó ekki á eitt sátt við gjöfina. „
Þetta er bara mjög niðurlægjandi jólagjöf," segir starfsmaður útgerðarinnar Skinneyjar-Þinganess en starfsfólk þar fékk forláta sjópoka úr gúmmíi. Pokinn er dökkblár og 60 lítrar, merktur Skinney-Þinganes. Samkvæmt heimildum Vísis eru starfsmenn ekki á eitt sáttir við jólagjöfina, enda ekki allir sem vinna úti á sjó sem starfa hjá útgerðinni. Enda spurði viðmælandi Vísis, sem vildi ekki að nafn hans kæmi fram, hvað í ósköpunum starfsfólk í landi ætti að gera við sjópokann. Þess má geta að aðrar útgerðir hafa gefið starfsfólki sínu öðruvísi gjafir í ár. Þannig birtist frétt í byrjun desember í Fréttablaðinu þar sem fram kom að Samherji hygðist greiða starfsfólki sínu í landi 260 þúsund króna launauppbót í desember til viðbótar við umsamda 46 þúsund króna desemberuppbót. Uppbótin nemur í heildina 320 þúsund krónum á mann og kostar Samherja í kringum 80 milljónir króna að frátöldum tengdum gjöldum. Reyndar hóf Samherji að gera reikninga sína upp í evrum á síðasta ári. Skuldbindingar félagsins eru að mestu í erlendri mynt og aðeins tæp eitt prósent lána í krónum. Því er félagið þokkalega statt. Skinney-Þinganes hagnaðist um 3,6 milljarða króna í fyrra; en afskriftir hjá dótturfélagi þess, Nónu ehf. námu tveimur og hálfum milljarði króna. Hagnaðurinn er hinsvegar svipaður og var hjá Samherja á síðasta ári. Ekki náðist í framkvæmdastjóra útgerðarinnar.
Mest lesið „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax Innlent Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Innlent Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Innlent Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB Sjá meira
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent