Byggt við Hnitbjörg til að bæta aðgengi gesta 23. nóvember 2010 06:00 Júlíana Gottskálksdóttir
Listasafn Einars Jónssonar undirbýr nú byggingu tengihúss á austanverðri lóð safnsins á Skólavörðuholti. Studio Grandi hefur hannað frumgerð að viðbyggingunni. Júlíana Gottskálksdóttir, forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar, segir ekki tímabært að greina frá því hverjar séu fyrirætlanir safnsins. Í tillögu sem send var skipulagsyfirvöldum í Reykjavík kemur hins vegar fram að unnið hafi verið að málinu síðan vorið 2008. „Niðurstaðan er sú að raunhæfasti kosturinn sé að byggja við austurálmu, á milli aðalhúss og garðhúss. Viðbyggingin er því tengibygging en jafnframt annar inngangur í safnið fyrir hreyfihamlaða og þá sem koma frá garði til dæmis hópa. Í húsinu verður jafnframt nauðsynleg aðstaða sem nú vantar í safnið,“ segir í greinargerð. Borgarminjavörður segir nýbygginguna taka tillit til beggja húsanna á lóðinni og til umhverfisins. Húsafriðunarnefnd segir viðbygginguna falla vel að byggingarlist safnsins og að hún sómi sér einnig sem sjálfstætt höfundarverk. Hnitbjörg eru friðuð. Elsti hluti hússins var reistur 1916 en hliðarsalirnir báðir voru ekki komnir fyrr en 1937. Laust eftir síðari heimsstyrjöldina var síðan byggt garðhús við austurmörk lóðarinnar. Það hús þjónar sem skrifstofa starfsmanna listasafnsins. Nýja viðbyggingin á að tengja þetta garðhús við aðalbygginguna. „Efnisnotkun verður sótt í það sem fyrir er á staðnum, skeljasandssteining eins og Hnitbjörg, grásteinsklæðning í framhaldi af mosavöxnum garðhleðslum auk koparklæðningar, viðar, sjónsteypu og glers,“ segir í greinargerð með tillögunni þar sem ítrekað er að núverandi hönnun sýni form og umfang tengibyggingarinnar aðeins í grófum dráttum. Fram kemur að áhersla sé lögð á að aðalinngangurinn í Hnitbjörg haldi sér: „En vegna aðgengis hreyfihamlaðra er opnuð leið eftir hallandi gangstíg niður að nýrri tengibyggingu og þaðan inn á neðri hæð safnsins. Aðkoma frá garði er sömuleiðis um tengibyggingu inn í afgreiðslu og safnbúð, en þar til hliðar er salernisaðstaða og fatahengi. Aðrir húshlutar eru lítill sýningarskáli næst garðhúsi og stærra rými meðfram austurmörkum lóðar fyrir geymslu verka og vinnuaðstöðu.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira