Reykjavík biðst afsökunar 18. nóvember 2010 15:47 Fyrst var fjallað um Breiðavík en nú hefur komið í ljós að mörg börn voru meðal annars send þangað á vegum borgar og ríkis. „
Borgarráð biður alla þá einstaklinga sem vistaðir voru á stofnunum á vegum barnaverndaryfirvalda í Reykjavík á árum áður og urðu fyrir ofbeldi eða illri meðferð afsökunar." Svo hefst bókun sem samþykkt var á fundi borgarráðs í morgun. Forsætisráðherra skipaði sérstaka vistheimilanefnd árið 2007 til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn. Nefndin var skipuð sérfræðingum og var formaður hennar Róbert R. Spanó, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Nefndin hefur skilað af sér þremur skýrslum þar sem meðal annars kemur fram að meiri líkur en minni séu taldar á því að vistmenn hafi á vissum starfstíma heimilanna orðið fyrir kynferðislegu áreiti af hálfu starfsfólks eða utanaðkomandi aðila. Borgaryfirvöld harma þá sorg og þungbæru reynslu sem börn sem vistuð voru á þessum heimilum urðu fyrir. Jafnframt segir í bókun borgarráðs um málið: „Starfsmenn Reykjavíkurborgar munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að aðstoða og styðja þá einstaklinga sem um ræðir og þess óska, t.d. með viðtölum við ráðgjafa og sálfræðinga. Á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar er veitt einstaklingsbundin ráðgjöf og stuðningur á sex þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar. Á hverri þjónustumiðstöð verður skipaður sérstakur tengiliður fyrir fyrrum vistmenn. Í dag er lögð áhersla á að tryggja nægjanlegt framboð af stuðningsúrræðum í Reykjavík til að styrkja börn og fjölskyldur þeirra til að komast megi hjá vistunum barna utan heimilis eins og kostur er. Ef nauðsyn krefst þess að börn séu vistuð á vegum barnaverndaryfirvalda er leitast við að tryggja að staðið sé faglega að verki og að formlegt eftirlit með vistunum á vegum Reykjavíkurborgar sé sýnilegt og virkt. Áhersla er lögð á eftirlit með aðbúnaði og líðan barna meðan á vistun stendur og öllum börnum á að veita eftirfylgd og nauðsynlegan stuðning samkvæmt barnaverndarlögum bæði á meðan á vistun þeirra stendur og eftir að vistun lýkur. Borgarráð þakkar vistheimilanefnd fyrir þá vinnu sem lögð hefur verið í greiningu á vistunarúrræðum fyrri tíma og harmar þær niðurstöður sem þar koma fram. Borgarráð heitir því að verklag hjá barnavernd í Reykjavík verði reglulega endurskoðað og metið með það að markmiði að tryggja öryggi barna og þjónustu við þau eins vel og kostur er."
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Sjá meira