Toshiki um Arnþrúði: Hún var virkilega móðgandi Erla Hlynsdóttir skrifar 18. nóvember 2010 14:41 Toshiki Toma er ósáttur við framkomu útvarpsstjóra Útvarps Sögu í garð útlendings sem hringdi inn í þátt en gat ekki talað íslensku
Toshiki Toma, presti innflytjenda, misbauð hvernig Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu, talaði við erlenda konu sem hringdi inn í þátt hennar á degi íslenskrar tungu en gat ekki tjáð sig á íslensku. „Framkoma útvarpkonunar gagnvart útlensku stúlkunni var ekki falleg. Hún var virkilega móðgandi," segir Toshiki í aðsendri grein sem birt var hér á Vísi í dag. Toshiki er sjálfur innflytjandi og segir að þó hann hafi verið að læra íslensku í átján ár hafi hann enn ekki náð fullkomnu valdi á tungumálinu. „Ég veit að þó að íslenskan mín sé ófullkomin ber ég virðingu fyrir íslenskri tungu," segir hann. Stúlkan hringdi inn í spjallþátt Arnþrúðar á mánudag og fékk heldur óblíðar mótttökur. Fram kom í morgunútvarpi Bylgjunnar í gærmorgun að Arnþrúður hafi ekki leyft stúlkunni að tala ensku í þættinum sínum. „ „Það er dagur íslenskrar tungu í dag og það er nú alveg lágmark að sýna okkur þá virðingu að tala íslensku á þessum degi og fyrir utan það hafa íslenskir fjölmiðlar þá skyldu að vera með efni á íslensku. Ef þú ætlar að vera á Íslandi, talar þú íslensku. Það er nú bara þannig," sagði Arnþrúður við konuna. Að mati Toshiki var þetta dónalegt af Arnþrúði. „Útvarpskonan misnotaði líka uppákomuna á ýmsa vegu. Í fyrsta lagi skammaði hún stelpuna eins og stelpan væri að vanrækja að læra íslensku. Hvað vissi hún um það? Stelpan gæti verið að læra en ekki treyst sér til að tala. Þetta eru hreinir fordómar hjá útvarpskonunni. Í öðru lagi er það óvirðing við íslenskuna þó fólk tali ensku eða annað mál á degi íslenskrar tungu? Á það fólk sem kann ekki íslenskuna bara að þegja á degi íslenskrar tungu? Er það hluti af hátíðarhöldunum? Ég skil ekki þessi rök," segir Toshiki. Hann klykkir út með: „Það er gott að bera virðingu fyrir íslenskri tungu. En það má ekki vera viðmið að meta mannkosti manneskju hvort viðkomandi tali góða íslenskuna eða ekki." Grein Toshiki Toma má lesa í heild sinni hér á Visi.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Innlent Fleiri fréttir Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Sjá meira