Innlent

Ætluðu að breyta sjóðnum í heildsölubanka

Fyrrverandi stjórnendur og starfsmenn Íbúðalánasjóðs virðast hafa tekið fram fyrir hendurnar á Alþingi Íslendinga og ætlað að breyta sjóðnum í heildsölubanka, segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor í viðskiptafræði. Hann sakar þá um að hafa samið af sér við bankana, verið firrta skynsemi við áhættustýringu og því sé Íbúðalánasjóður nú tæknilega gjaldþrota.

Þegar bankarnir gerðu áhlaup á Íbúðalánasjóð 2004 varð til einkennileg hringekja í íslensku fjármálalífi. Fólk tók ný íbúðalán hjá bönkunum í hrönnum og borgaði með þeim upp lán sín hjá Íbúðalánasjóði. Á tæpu ári hafði fólk greitt upp 148 milljarða króna hjá Íbúðalánasjóði sem þaá átti hann skyndilega fullt af lausafé sem þurfti að ávaxta.

Bankarnir áttu hins vegar ekki nógan pening fyrir þessum íbúðalánum. „Þeir lenda í fjárskorti og leita til Íbúðalánasjóðs með laust fé," segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands.

Sjóðurinn fer þá að lána bönkunum. Samtals lánar hann þeim 102,4 milljarða króna. Þannig varð til þessi hringekja bankarnir lánuðu fólki hærri lán á lægri vöxtum með peningum sem að drjúgum hluta komu frá Íbúðalánasjóði. Og nú er Íbúðalánasjóður talinn tæknilega gjaldþrota og þarf allt að 40 milljarða króna innspýtingu frá ríkinu eða skattborgurum. En hvernig gat það gerst? Jú, meðal annars með þessum hringekjugjörningi, að mati Vilhjálms.

„Vegna þess að þessi lán til bankanna sem voru í raun lán Íbúðalánasjóðs því bankarnir báru enga útlánaáhættu af þessu. Þau voru ekki samkvæmt reglugerð um hámark sem var 15,8 milljónir. Þarna er lánað framhjá reglugerð," segir Vilhjálmur.

Hækkandi lán næra síðan fasteignabóluna. „Mér virðist þegar ég horfi yfir þetta eftir á að stjórnendur, allavega starfsmenn, hafi haft í huga að breyta hlutverki Íbúðalánasjóðs í heildsölubanka án þess að fulltrúar eigenda, sem er Alþingi, tæki þar ákvörðun um," segir Vilhjálmur.

Fyrrverandi bankastjóra Landsbankans virðist hafa verið fullkunnugt um að dæmið gengi ekki upp. Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri, segir í rannsóknarskýrslu alþingis að húsnæðislán þeirra hafi verið tómt rugl og virðist hafa vonast til að lánshæfismatsfyrirtækið Moody's stoppaði þá af og settu eitthvert vit í galskapinn. „Hann vissi að þetta væri glórulaust en samt er haldið áfram," segir Vilhjálmur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×