Kínverjar funda um álver á Bakka 18. nóvember 2010 19:32
Fulltrúar kínverska álfyrirtækisins Bosai eru komnir til landsins til viðræðna við stjórnvöld og Landsvirkjun um álver við Húsavík. Sveitarstjóri Norðurþings segir komið að þeim tímapunkti að ná samningum og hefjast handa. Það sýnir þá alvöru sem er í málinu af hálfu Kínverja að þeir eru nú í annað sinn á hálfu ári komnir með sendinefnd yfir hálfan hnöttinn til að kanna möguleika á álveri á Íslandi. Þeir funduðu í iðnaðarráðuneytinu í dag með ráðuneytisstjóra og fulltrúum fjárfestingarstofu, verkefnisstjórnar og sveitarfélagsins Norðurþings en ræða einnig við Landsvirkjun og skoða orkuver í Íslandsheimsókninni. Fulltrúi Þingeyinga, Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, segir komið að þáttaskilum í verkefninu. Sameiginlegu umhverfismati sé að ljúka og framundan sé að ganga til samninga og hefjast handa. Það er hins vegar annað álfyrirtæki, Alcoa, sem lengst hefur undirbúið álver á Bakka við Húsavík og staðið að sameiginlegu umhverfimati, sem tekur einnig til virkjana, en matið er væntanlegt í næstu viku. Verkefnisstjórn um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum hefur komist þeirri niðurstöðu, eftir að hafa skoðað atvinnukosti sem bjóðast, að tveir séu áhugaverðir og raunhæfir; álver Alcoa og álver Bosai. Spurður hvort þetta sé ekki vonlaust, í ljósi þess að pólitísk andstaða er gegn því að álver rísi í Þingeyjarsýslum, svarar Bergur Elías: „Nei, ég held ekki. Það getur varla verið andstaða við að skapa störf." Bæði Þingeyingar og allir landsmenni þurfi á því að halda.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Sjá meira