Allt að 122% verðmunur á hamborgarhrygg 22. desember 2010 14:35 32% verðmunur var á dýrasta taðreykta hangikjötinu, hjá Nettó, og því ódýrasta, hjá Fjarðarkaupum, samkvæmt könnun verðlagseftirlits ASÍ
Allt að 122% verðmunur var á hamborgarhrygg með beini þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í 7 lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum í Reykjavík og Akureyri á mánudag. Kannað var verð á 46 algengum matvörum sem eru til í eldhúsum landsmanna yfir hátíðarnar. Bónus var oftast með lægsta verðið í 27 tilvikum af 46 en í 15 tilfellum var um eða undir 2 krónu verðmunur á Bónus og Krónunni. Nóatún var með hæsta verðið í 19 tilvikum, en Samkaup-Úrval var næst oftast með hæsta verðið í 15 tilvikum. KEA Hamborgarhryggur ódýrastur í Nettó Akureyri Mikill verðmunur reyndist á hangikjöti og hamborgarhrygg, en verðmunurinn var 32-122%. Mesti verðmunurinn var á KEA Hamborgarhrygg með beini sem var á lægsta verðinu hjá Nettó Akureyri á 989 kr./kg. en dýrastur hjá Nóatúni og Samkaupum-Úrval á 2.198 kr./kg. sem er 122% verðmunur eða 1.209 kr. Minnstur verðmunur var á taðreyktu hangikjöti frá Kjarnafæði sem var á lægsta verðinu hjá Fjarðarkaupum á 2.428 kr./kg. en dýrast hjá Nettó á 3.195 kr./kg. sem er 32% verðmunur eða 770 kr./kg. Einnig má benda á að það var 54% verðmunur á hæsta og lægsta verði á SS birkireyktu hangikjöti. Athygli vakti að enginn verðmunur reyndist vera á jólapaté með rifsberjahlaupi frá Alí og Hreindýrapaté frá Viðbót, í þeim verslunum sem varan var fáanleg.Mikill verðmunur á ávöxtum milli verslana Mikill verðmunur á grænmeti og ávöxtum milli verslanna vakti einnig athygli. Sem dæmi má nefna að ódýrustu fáanlegu appelsínurnar kostuðu 168 kr./kg. í Fjarðarkaupum en 339 kr./kg. hjá Hagkaupum sem er 102% verðmunur. Forsoðnar skyndikartöflur frá Þykkvabæ voru ódýrastar á 395 kr./kg. hjá Bónus en dýrastar á 545 kr./kg. hjá Fjarðarkaupum sem er 38% verðmunur eða 150 kr./kg. Af öðrum vörum má nefna að lægsta verð á Lindu konfektkassa 460gr. var 998 kr. í Bónus en það var dýrast í Fjarðarkaupum á 1.498 kr. sem er 50% verðmunur. Ódýrasta kílóverðið af Machintoch Quality Street var 1.299 kr./kg. hjá Bónus en það var dýrast hjá Nóatúni á 1.990 kr./kg. sem er 53% verðmunur eða 691 kr./kg.Lítill munur á Nóa konfekti Aðeins var 3-9% verðmunur á Nóa konfektinu á milli verslana en lægsta verðið var hjá Bónus en hæsta hjá Nóatúni og Samkaupum-Úrval. ASÍ tekur fram í tilkynningu að verslunin Kostur í Kópavogi neitaði þátttöku í könnuninni Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Holtagörðum, Krónunni Granda, Nettó Akureyri, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Samkaupum Úrval Hafnarfirði, Hagkaup Skeifunni og Nóatúni í Nóatúni. Verslunin Kostur í Kópavogi neitaði þátttöku í könnuninni. Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar þurfa að láta í minnipokann fyrir rigningunni Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Sjá meira
Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar þurfa að láta í minnipokann fyrir rigningunni