Meint meðlagssvik tilkynnt dag hvern 22. desember 2010 06:00 Gæsluvellir í Reykjavík og fólk tengt þeim. Börn, starfsmenn og foreldrar.
Tryggingastofnun Ríkisins (TR) berast tilkynningar á hverjum degi um meint svik meðlagsþega, sem sagðir eru búa í óskráðri sambúð með meðlagsgreiðandanum sem þó greiði ekkert aftur til Innheimtustofnunar sveitarfélaga. TR sér um að greiða einstæðum foreldrum meðlag en sendir það síðan í innheimtu til Innheimtustofnunar sveitarfélaga. Jón Ingvar Pálsson, forstjóri Innheimtustofnunar sveitarfélaga, segir að reglulega vakni grunur um að foreldrar séu ranglega skráðir einstæðir og þiggi meðlag þegar hitt foreldrið búi í raun hjá þeim, stundi hugsanlega svarta vinnu og safni háum meðlagsskuldum hjá Innheimtustofnuninni. Slíkum grun sé ýmist beint til TR eða Ríkisskattstjóra. „Það koma daglega ábendingar um svona til okkar. Þær eru allar kannaðar og sumar reynast á rökum reistar en aðrar ekki,“ segir Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu- og kynningasviðs TR. Reynist vera rökstuddur grunur um að sambúðarskráningin sé röng er málið sent til Þjóðskrár, sem aftur sendir bréf á fólkið og gefur því tveggja vikna frest til að skýra mál sitt eða mótmæla ályktuninni um ranga skráningu. Berist ekkert svar er lögheimilið einfaldlega flutt og TR breytir þá greiðslunum í samræmi við það. Ef fólkið þrætir fyrir ranga skráningu er málið sent til lögreglu, sem grefst fyrir um búsetuhagina. Á meðan á þessu ferli stendur heldur fólkið óbreyttum bótum. Greint hefur verið frá því að meðlagsgreiðendur skulda hinu opinbera nú um 20 milljarða króna. Jón Ingvar segir þessar tölur brenglaðar, í ljósi þess að Innheimtustofnunin haldi kröfum á menn lifandi allt fram að andláti þeirra. Til samanburðar afskrifi skatturinn skuldir eftir fjögur ár og bankar eftir fjögur til átta ár. Dæmi eru um að einstaklingar skuldi upp undir 15 milljónir í meðlag. - sh / sjá síðu 6
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Sjá meira