Glæsilegar sigurmyndir í tunglmyrkvakeppni 22. desember 2010 10:57 Sigurmynd Sveins Bjarka Brynjarssonar.
Tæplega sjö hundruð myndir bárust í keppni Fréttablaðsins og Vísis um bestu ljósmyndina af tunglmyrkvanum í gærmorgun. Sveinn Bjarki Brynjarsson, sextán ára Árbæingur, bar sigur úr býtum og var sigurmyndin birt á forsíðu Fréttablaðsins í dag. Myndina tók hann í garðinum heima hjá sér í Selási. Að eigin sögn þurfti hann marga tugi tilrauna til að ná almennilegri mynd, enda er myndin tekin á tíma og má sjá Svein sjálfan í forgrunni hægra megin. Í bítið á Bylgjunni hringdi í Svein Bjarka í morgun og ræddi við hann um sigurinn eins og heyra má hér fyrir ofan. Hann hlýtur í verðlaun glæsilega Sony NEX myndavél frá Sony Center í Kringlunni. Annað sætið hlaut Steingrímur Árnason, fyrir glæsilega mynd af tunglinu ásamt verkinu Björgun eftir Ásmund Sveinsson. Í þriðja sætinu hafnaði Ingólfur Bjargmundsson, fyrir mynd þar sem litir tungslins og rafmagnsmasturs við álverið í Straumsvík njóta sín til fullnustu. Myndir þeirra eru birtar hér fyrir neðan og í meðfylgjandi myndasafni. Steingrímur og Ingólfur fá báðir leikhúsmiða í verðlaun. Í dómnefnd sátu Anton Brink, ljósmyndari á Fréttablaðinu og Vísi, Einar Skúlason, kynningarstjóri Fréttablaðsins og Vísis, Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins og Tinni Sveinsson, vefstjóri Vísis. Fréttablaðið og Vísir þakka öllum þeim sem sendu inn myndir í þessa skemmtilegu keppni.Sjá má fleiri af úrvalsmyndum keppninnar í meðfylgjandi myndasafni. Steingrímur Árnason hafnar í öðru sæti í samkeppninni fyrir þessa mynd sem hann kallar Tunglbjörgun. Hér sést bjargvætturinn úr verki Ásmundar Sveinssonar við Ægisíðu, Björgun, teygja sig í átt að rauðleitu tunglinu. 2. SÆTI Steingrímur Árnason hafnar í öðru sæti í samkeppninni fyrir þessa mynd þar sem bargvætturinn úr verki Ásmundar Sveinssonar við Ægisíðu, Björgun, virðist teygja sig í átt að rauðleitu tunglinu.Þriðja sætið hlaut Ingólfur Bjargmundsson. Upplýst rafmagnsmastur við álverið í Straumsvík rammar inn mánann í þessari mynd hans. Ingólfur var á ferðinni þennan morgun og tók fleiri myndir sem komust í úrvalshópinn. 3. SÆTI Upplýst rafmagnsmastur við álverið í Straumsvík rammar inn mánann í þessari mynd Ingólfs Bjargmundssonar. Ingólfur var á ferðinni í gærmorgun og tók fleiri myndir, sem sjá má í myndasafninu yfir bestu myndir keppninnar.Sigurmyndin er eftir Svein Bjarka Brynjarsson, sextán ára Árbæing. Myndina tók hann í garðinum heima hjá sér í Selási. Að eigin sögn þurfti hann marga tugi tilrauna til að ná almennilegri mynd, enda er myndin tekin á tíma og má sjá Svein sjálfan í forgrunni hægra megin.Bróðir í trúnni. Mykola Khyzhnyak tók þessa mynd sem rétt missti af verðlaunasæti. Á turni Fríkirkjunnar situr kúla sem líkist litla bróður mánans.Perla á himni. Það er engu líkara en að tunglið ætli að tylla sér á þak Perlunnar á þessari mynd Ingólfs Bjargmundssonar, sem var nálægt verðlaunasæti.Óðinn Árnason tók þessa mynd þar sem borgarljósin kallast á við tunglið.Runólfur Hauksson er höfundur þessarar jólalegu myndar þar sem tunglið tyllir sér fyrir ofan burstabæ.Ágúst Sigurjónsson er höfundur þessarar myndar.Jóhann Jóhannsson náði mynd af rauðleitu tunglinu og Hallgrímskirkjuturni.Ingi Rúnar Gíslason er höfundur þessarar dulúðlegu myndar af rauðleitu tunglinu sveipuðu skýjahulu.Grímur Óli Geirsson náði góðri nærmynd af tunglinu þar sem hægt er að rýna í yfirborðið.
Mest lesið Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Simmi vinsælasti leynigesturinn Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Gummi lögga er maður ársins 2025 Innlent Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Innlent „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Fleiri fréttir Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Sjá meira