Dregið úr flugöryggi í Evrópu 22. desember 2010 06:00 Lufthansa Samtök evrópskra atvinnuflugmanna segja vísindalegum sjónarmiðum vikið til hliðar til að forða flugfélögum frá auknum kostnaði.Mynd/AP
Evrópusamband atvinnuflugmannafélaga segir nýjar tillögur Flugöryggisstofnunar Evrópu að nýjum reglum um hámarks flugtíma og lengd vakta flugmanna munu draga úr flugöryggi í álfunni. Í fréttatilkynningu frá Evrópusambandi atvinnuflugmannafélaga (ECA) segir að tillögur Flugöryggisstofnunarinnar (EASA) taki ekkert tillit til vísindalegra niðurstaðna heldur sé ætlað að forða flugfélögum frá auknum kostnaði. EASA leggi til fjórtán stunda hámarksvinnutíma flugmanna en vísindalegar niðurstöður sýni að hámarkið ætti að vera tólf stundir. Til viðmiðunar er nefnt að vinnutímahámark Evrópusambandsins fyrir vörubílstjóra sé níu stundir að degi og tíu stundir að nóttu. „Reglurnar eru langt undir þeim væntingum sem ætti að bera til trúverðugrar stofnunar ESB í flugöryggismálum,“ segir ECA. „Verði þessum tillögum ekki breytt verulega, munu þær draga úr flugöryggi í Evrópu, einkum í þeim löndum þar sem fyrir eru í dag strangari reglur um vinnutímamörk flugáhafna.“ Philip von Schöppenthau, framkvæmdastjóri ECA, segir að vinnutímamörk eigi að taka mið af mannslíkamanum og takmörkunum líkamsklukkunnar. „EASA virðist hins vegar halda því fram að flugmenn í Evrópu þoli betur þreytu og geti unnið lengur en flugmenn í Bandaríkjunum og meira heldur en niðurstöður vísindamanna segja að sé innan öryggismarka,“ segir von Schöppenthau. - gar
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Fleiri fréttir Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Sjá meira