Ásókn í greiðslu arfs fyrir skattahækkun 22. desember 2010 07:00 Yfirleitt er það svo að mest er að gera í þessum málum rétt fyrir áramót en sýslumannsembættin sem Fréttablaðið ræddi við töldu mun meira að gera í ár en áður. fréttablaðið/stefán
Erfðafjárskýrslum, til að hægt sé að greiða út arf fyrirfram, hefur fjölgað mikið undanfarnar vikur. Erfðafjárskattur mun hækka úr fimm prósentum í tíu um áramótin. Sýslumannsembættin í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og á Akureyri finna fyrir þessari aukningu. „Það er mikil aukning. Skatturinn á að hækka um helming um áramót þess vegna er fólk að gera þetta núna,“ segir Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður í Kópavogi og Hafnarfirði. Hann segir að byrjað hafi að fjölga í kringum þann tíma sem hugmyndir um hækkun skattanna heyrðust. Engar tölur eru til um fjölgunina enn sem komið er, en sem dæmi voru fimmtán erfðafjárskýrslur lagðar fram í Kópavogi á mánudag. Það þykir mjög mikið. Guðgeir segist reikna með að áfram verði allt á fullu fram að áramótum. „Það er æskilegt að fólk komi sem fyrst með þetta til þess að það takist að afgreiða allt.“ Sömu sögu er að segja hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík. Þar er mjög mikið um að fólk leggi fram erfðafjárskýrslur í þessum tilgangi nú, að sögn Þuríðar Árnadóttur skrifstofustjóra. Fyrst og fremst hafi orðið vart við fjölgun mála í desember. „Við sjáum fram á að það verði áfram þessa daga fram að jólum og svo milli jóla og nýárs,“ segir hún. Reynt verði að fara yfir allar skýrslur sem berist. „Við leggjum okkur öll fram við það og vonandi tekst það.“ Björn Jósef Arnviðarson, sýslumaður á Akureyri, segir það tilfinningu sína að heldur meira hafi verið um mál af þessu tagi upp á síðkastið. Að hans sögn er þó alltaf mikið að gera í erfðafjármálum undir lok árs. Samkvæmt fjárlögum næsta árs mun erfðafjárskattur hækka úr fimm prósentum í tíu prósent um áramótin. Þegar um dánarbú er að ræða er ein milljón króna undanþegin skatti nú en sú upphæð hækkar í eina og hálfa milljón við breytingarnar. Áætlað er í fjárlögum að þessar breytingar muni skila ríkissjóði einum milljarði króna í viðbótartekjur á næsta ári. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Innlent Fleiri fréttir Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Sjá meira