Innlent

Fjöldi fólks heimsótti Borgarleikhúsið í dag

Leikhússtjórinn bakaði vöfflur ofan í gesti.
Leikhússtjórinn bakaði vöfflur ofan í gesti.
Fjöldi fólks heimsótti Borgarleikhúsið í dag en þar var opið hús til að kynna nýja leikárið. Leikhússtjórinn bakaði vöfflur handa gestum í tilefni dagsins.

Það er 20 ára hefð fyrir því að Borgarleikhúsið opni dyrnar og kynni starfsemi sína fyrir Reykvíkingum og nærsveitungum. Dagskráin var ótrúlega fjölbreytt, boðið var upp á skoðunarferðir um leikhúsið þar sem tækifæri gafst til að kanna alla króka og kima, þá voru brot úr nokkrum af vinsælustu verkum hússin flutt. Hér er til að mynda Gói í hlutverki Orms Óðinssonar úr Gauragangi og þetta eru Barbara og Bella úr sýnigunni Jesú litla.

Ný verk voru einnig kynnt í dag, meðal annars með opnum æfingum. Ilmur Kristjánsdóttir kynnti gestum fyrir sýningunni Fólkið í kjallaranums sem verður sett upp í vetur og Hljómsveitin Ný Dönsk var einnig á svæðinu en sveitin var að kynna sýninguna Nýdönsk í nánd sem verður í Borgarleikhúsinu á næstunni.

Leikhússtjórinn, Magnús Geir, lét sig ekki vanta og bakaði vöfflur í mannskapinn af miklum móð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×