Innlent

Von á miklu mannlífi í Hafnarstræti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Til stendur að hafa götuna lokaða á næstunni. Mynd/ Reykjavíkurborg.
Til stendur að hafa götuna lokaða á næstunni. Mynd/ Reykjavíkurborg.
Hafnarstræti hefur nú verið verið lokað fyrir bílaumferð við Pósthússtræti til að gefa gangandi, hjólandi og verslunum betra rými. Þeir sem reka verslanir í götunni ætla að nýta sér hana með ýmsu móti í september til dæmis með sölutjöldum.

Í tilkynningu frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar segir að hugmyndin að þessari breytingu sé komin frá verslunar- og þjónustuaðilum við götuna og hafi þeir nú leyfi til þess að skapa skemmtilega útistemmningu í götunni. Bílastæði verða ekki heimil í götunni í september. Innkeyrsla fyrir bifreiðar sem þjóna fyrirtækjum í götunni er heimiluð frá Tryggvagötu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×