Lífið

Frumsýna nýtt leikrit í Norræna húsinu

Á meðal leikara í sýningunni er Hannes Óli Ágústsson sem fór á kostum í Áramótaskaupinu í gervi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins.
Á meðal leikara í sýningunni er Hannes Óli Ágústsson sem fór á kostum í Áramótaskaupinu í gervi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins.

Leikhópurinn Munaðarleysingjar frumsýnir nýtt verk eftir Dennis Kelly, eitt heitasta leikskáld Bretlandseyja föstudaginn 8. janúar í sal Norræna hússins. Verkið heitir Orphans en á íslensku nefnist það Munaðarlaus. Leikstjóri sýningarinnar er Vignir Rafn Valþórsson sem jafnframt þýðir verkið.

Leikhópurinn samanstendur af ungum leikurum, Hannesi Óla Ágústssyni, Stefáni Benedikt Vilhelmssyni og Tinnu Lind Gunnarsdóttur, sem ákváðu að fjárfesta í réttinum á þessu nýja og vinsæla verki og setja það upp sjálf - en hópurinn hefur enga styrki hlotið fyrir uppsetningunni.

Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir Dennis Kelly er frumsýnt á Íslandi en verk hans hafa vakið mikla athygli. Verk hans hafa verið sýnd um gervalla Evrópu og Norður Ameríku og var nýlega valinn Besta Erlenda Leikskáldið af þýska leiklistartímaritinu Theatre Heute fyrir verk sitt Taking Care of Baby.

Verðlaunaverk

Munaðarlaus, eða Orphans, var frumsýnt á Edinborgar-hátíðinni nú í sumar við frábærar undirtektir. Þar hlaut verkið Fringe First verðlaunin og Herald Angel verðlaun hátiðarinnar. Það var síðan frumsýnt í Birmingham Repertory Theatre nú í september og í Soho Theatre í London þann 8. október. Verkið fékk m.a. 5 stjörnur hjá Time Out og mjög góða dóma í öllum helstu fjölmiðlum Bretlands.

Munaðarlaus verður frumsýnt þann 8. janúar í Norræna húsinu klukkan 19:55. Aðeins 8 sýningar eru áætlaðar af verkinu. Miðaverðinu verður stillt í hóf og kostar 2000 krónur inn. Afsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja.

Tölvupóstur miðasölu: munadarlaus@gmail.com

Pöntunarsími: 895 9919












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.