Ráðuneytið vill dýrara húsnæði 18. nóvember 2010 07:00 Í heilbrigðisráðuneytinu er vilji til að sameinað Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð verði til húsa í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Fréttablaðið/gva
Heilbrigðisráðuneytið vill að ný sameinuð stofnun Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins verði til húsa í gömlu Heilsuverndarstöðinni á Barónsstíg. Þar er húsaleiga milljón krónum hærri á mánuði en af húsnæði sem Framkvæmdasýsla ríkisins leggur til að stofnunin leigi. Þetta kemur fram í umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins um frumvarp heilbrigðisráðherra um sameiningu Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins. Framkvæmdasýslunni var fyrr á árinu falið að auglýsa eftir húsnæði fyrir nýju stofnunina. Ellefu tilboð bárust og var lagt til að samið yrði um leigu að Laugavegi 178. Um er að ræða 1.620 fermetra húsnæði og er leiguverðið 1.500 krónur á fermetra. Nemur ársleiga því 29 milljónum króna. „Heilbrigðisráðuneytið óskaði hins vegar eftir því að ganga til samninga um hluta húsnæðis Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg. Þar er um að ræða 1.850 fermetra húsnæði og er leiguverð 1.850 krónur á fermetra, þ.e. ársleiga upp á 41 milljón króna,“ segir í umsögn fjárlagaskrifstofunnar. Mismunurinn er tólf milljónir á ári, eða 41 prósent. Þá er upplýst að sautján ár séu eftir af leigusamningi um núverandi húsnæði Landlæknisembættisins á Seltjarnarnesi en ársleiga þar er 24 milljónir. Mögulegt sé að framleigja húsnæðið en vegna aðstæðna á fasteignamarkaði sé ólíklegt að sama verð fáist. Takist ekki að semja um lækkun leigunnar falli mismunurinn á nýja emættið eða heilbrigðisráðuneytið. Þess muni gæta í rekstri stofnunarinnar sem þurfi að forgangsraða enn frekar en ella vegna húsnæðismálanna. Í greinargerð frumvarpsins segir að meginmarkmið sameiningarinnar sé að starfrækja eitt öflugt embætti á sviði lýðheilsu- og heilbrigðismála. Við sameiningu skapist tækifæri til að styrkja og efla starfið enn frekar en nú er. Samhliða verði unnt að auka hagkvæmni í rekstri, draga úr yfirbyggingu og samnýta mannafla betur en hingað til.bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Sjá meira