Besti flokkurinn ætlar að skoða hvort Bubbi er bestur 25. nóvember 2010 13:47 Heiða Helgadóttir útilokar ekki að Besti flokkurinn bjóði fram á landsvísu „
Við þurfum bara að sjá hvort hann samræmist því að vera bestur eða ekki," segir framkvæmdarstjóri og varaformaður Besta flokksins um Bubba Morthens, sem hefur lýst því yfir að hann áhuga á því að bjóða sig fram fyrir flokkinn. Besti flokkurinn hefur rætt það innan sinna raða að bjóða fram á landsvísu. „Það er ekkert útilokað í þeim efnum. Bestir flokkurinn er alltaf lifandi og vakandi yfir því sem er að gerast á Íslandi. Ef það er það besta að bjóða fram á landsvísu þá hugleiðum við það og gerum við það mjög líklega," segir Heiða Kristín Helgadóttir framkvæmdarstjóri og varaformaður Besta flokksins. Hún segir það einnig hafa verið formlega rætt innan flokksins að bjóða fram á landsvísu. Bubbi Morthens segir í nýútkominni samtalsbók sinni að hann gæti vel hugsað sér að fara í pólitík. Þá sé það Besti flokkurinn sem hugnist honum best. En hvernig líst Heiðu á þetta útspil Bubba? „Eins og ég segi þá reynir Besti flokkurinn alltaf að gera best og ekki lélegt, þannig að við þurfum bara að sjá hvort það væri best. Ef svo reynist vera þá má skoða það, en hann hefur ekkert formlega haft samband við okkur. Ekki svo ég viti," segir Heiða. Bubbi segir að Besti flokkurinn heilli sig þar sem þau séu nógu einföld til að geta breytt hlutunum og séu ekki þakin þykku spillingarlagi eins og raunin sé með aðra flokka landsins. Þetta tekur Heiða undir „Nema kannski þetta með einföld. Ég veit ekki alveg. En jú, kannski verum við dálítið einföld," segir hún. Tónlistarmenn hafa verið áberandi hjá Besta flokknum og því mætti ætla að Bubbi myndi falla vel inn í þann hóp. „Við þurfum bara að sjá hvort hann samræmist því að vera bestur eða ekki," segir Heiða.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira